Lífið

Forsetinn óskar Svölu góðs gengis í Kænugarði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, óskar Svölu og félögum góðs gengis í Eurovision.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, óskar Svölu og félögum góðs gengis í Eurovision. mynd/andreas putting
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sendir Svölu Björgvinsdóttir og íslenska Eurovision-hópnum góðar kveðjur á Facebook-síðu sinni í dag en Svala keppir í kvöld í svokölluðu dómararennsli þar sem hún flytur lagið sitt Paper fyrir dómnefndir þátttökuþjóðanna í keppninni.

Atkvæði dómaranna gilda til hálfs við símakosninguna sem fer fram á morgun eftir að Svala og hinar 17 þjóðirnar sem keppa á fyrri undanúrslitakvöldinu hafa flutt lögin sín í beinni útsendingu. Svala er sú 13. í röðinni á svið á morgun.

Í færslu þar sem forsetinn fer yfir ýmislegt sem á daga hans hefur drifið undanfarna daga skýtur hann því að í lokin að Eurovision-gleðin í Kænugarði sé framundan.

„Á morgun hefst líka Eurovisiongleðin í Kænugarði. Við Eliza óskum Svölu og félögum auðvitað góðs gengis í keppninni!“ segir Guðni.

Fréttastofa 365 verður með ítarlega umfjöllun frá Eurovision í Kænugarði næstu daga. Fréttamennirnir Stefán Árni Pálsson og Benedikt Bóas Hinriksson verða með umfjöllun hér á Vísi, Stöð 2, Fréttablaðinu og á Bylgjunni á hverjum degi í gegnum alla keppnina.

Þá verður sérstakur vefþáttur á Vísi alla dagana og hefur sá þáttur fengið nafnið Júrógarðurinn.

Hægt verður að fylgjast með ævintýrum Stefáns og Benedikts í Kænugarði á Twitter-reikningi Lífsins og á Snapchat-reikningi 365 sem heitir einfaldlega Snap-365.  

Við minnum líka lesendur á að fylgjast með Facebook-síðu Lífsins og Facebook-síðu Vísis.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×