Lífið

Alltaf heyrt að hann geti ekki sungið: „Þú ert ástæðan fyrir því að þessi þættir eru til“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ofboðslega vel gert.
Ofboðslega vel gert.
Englendingurinn Jamie Lee Harrison frá Newcastle sló rækilega í gegn áheyrnarprufu í Britains Got Talent á dögunum.

Hann mætti og flutti lagið Everybody Hurts með R.E.M. á mjög tilfinningaríkan hátt. Harrison hefur lengi vel fengið að heyra það að hann sé einfaldlega ekki nægilega hæfileikaríkur til þessa að lifa á tónlist og slá í gegn.

Þessi 24 ára söngvari gjörsamlega negldi áheyrnarprufuna og flaug áfram.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×