Lögfræðingur við rútustýrið Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 30. maí 2017 21:00 „Það magnaða er að mér finnst þetta allt skemmtilegt, líka þegar það er bras, t.d. vegna veðurs ogfærðar." MYND/STEFÁN „
Þetta atvikaðist bara sisvona. Ég var hættur hefðbundnum skrifstofurekstri en tók að mér verkefni við ráðgjöf, skjalagerð og þess háttar á sviði lögfræði og fasteignasölu en ekkert fast í hendi og bauðst að prófa að vinna í ferðageiranum yfir sumartímann við rútuakstur,“ segir Jón Sigfús lögfræðingur um tildrög þess að hann fór að keyra rútu. Hann hafði ekki áður unnið við að keyra stærri farartæki en alltaf verið talsvert viðloðandi vélar, mest tengt búskap. „Ég hafði verið að stússast í frístundabúskap lengi, hestamennsku og hrossarækt, heyjað og slíkt. Ég hafði endurnýjað ökuréttindin sem voru upphaflega frá 1968 og fór í meiraprófið, allan pakkann, vorið 2015 og langaði að prófa að keyra rútur. Ég hef verið að keyra í lausamennsku hjá SBA síðastliðin tvö sumur og gripið í þetta líka yfir vetrartímann en jafnframt sinnt tilfallandi verkefnum við lögfræðina, ekki síst fyrir gamla kúnna.“Þrífst ekki í skrifstofuvinnu„Það magnaða er að mér finnst þetta allt skemmtilegt, líka þegar það er bras, t.d. vegna veðurs og færðar. Ég er hundvanur vetrarakstri úti um land og hef búið stóran hluta ævinnar í dreifbýlinu, á Norðurlandi og Vestfjörðum, enda Skagfirðingur í móðurætt og Vestfirðingur í föðurætt. Ég var við kennslu og búskap fyrir vestan á yngri árum og var líka í löggunni. Reyndar hef ég aldrei þrifist til lengdar við skrifstofuvinnu eina sér og alltaf þurft að stússast meðfram í einhverju, var t.d. talsvert í hestaferðum yfir sumartímann með ferðamenn, fyrst um 1990, frá Reykjavík en einnig fyrir norðan og fyrir vestan í seinni tíð,“ segir Jón Sigfús.Á skólabekk í veturSíðasta haust settist Jón Sigfús á skólabekk að læra leiðsögn og stefnir að útskrift um jólin. „Það kom einhvern veginn af sjálfu sér. Þó ég hafi mestmegnis starfað sem lögfræðingur og fasteignasali undanfarna tvo áratugi var ég áður í líffræðinámi við HÍ og starfaði aðeins á því sviði við fiskeldi á yngri árum. Ég hef líka kennt á öllum skólastigum, m.a. við háskóla sem stundakennari. Það lá því frekar beint við að huga að námi á sviði ferðamennsku þar sem ég varð alveg heillaður af því að ferðast með erlenda gesti um þetta einstaka land okkar. Ég skráði mig í leiðsögunámið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands fyrst og fremst til að skerpa á þekkingu á landinu, jarðfræði, sögu og menningu þjóðarinnar og náttúrunni allri. Planið var ekkert endilega að fara að starfa sem leiðsögumaður. Mér sýnist hins vegar að það gæti hentað mér ágætlega að blanda þessu saman og taka að mér verkefni við ökuleiðsögn, hugsanlega með skjala- og skrifstofustússi.“Stóri hringurinn í uppáhaldiJóni Sigfúsi finnst skemmtilegast að fara í styttri og lengri ferðir út um land. „Ég hef farið margar hringferðir, síðast um miðjan apríl síðastliðinn, en tók svo pásu til að sinna verkefnum og prófum í leiðsögunáminu og er að byrja að keyra aftur núna. Stóri hringurinn er dálítið mitt uppáhald. Þá meina ég þegar einnig er farið um Vestfirði. Svoleiðis ferð er ekki styttri en 14 dagar ef eitthvert vit er í skipulagningunni. Ef ég ætti að taka eitthvað út fyrir sviga myndi það vera Snæfellsnes og Vestfirðir en ég elska að ferðast um allt land og á erfitt með að gera upp á milli landshluta. Hingað til hef ég alltaf verið bílstjóri í þessum ferðum og oftast með afbragðsgóða leiðsögumenn. Ég stefni þó á að prófa ökuleiðsögn í nokkrum ferðum í sumar.“Enginn tækjanördÞegar Jón Sigfús er spurður hvort hann hafi áhuga á bílum og farartækjum almennt segir hann að svo sé. „En ég er samt enginn nörd. Um tíma var ég á breyttum jeppum og hafði gaman af ferðum í snjó yfir vetrarmánuðina og hef alltaf verið dálítill bíladellu- og mótorhjólakall.“ Hann segist í og með spá meira í slík tæki eftir að hann fór að keyra rútur. „Ég hef unnið hjá þessu frábæra fyrirtæki, SBA, sem er með höfuðstöðvar á Akureyri en heilmikinn flota einnig hér syðra og þar hef ég keyrt rútur af öllum stærðum og gerðum, allt eftir verkefnum hverju sinni. Ég hef verið á eldri bílum sem hafa verið endurbyggðir og eru meiriháttar en mest verið á nýjum eða nýlegum bílum, Mercedes Bens, Tourismo, oftast með öllum þægindum.“ Jón Sigfús segir að það hafi komið honum ánægjulega á óvart hvað þessi vinna er áhugaverð og gefandi. „Ég hef að vísu verið svo heppinn að kynnast margs konar útgáfum af ferðum. Fjölbreytileiki er því snar þáttur í þessu eins og ég hef kynnst þessum störfum, misjafnir hópar, leiðir, árstíðir, veður, færð og birta að ógleymdum leiðsögumönnunum og auðvitað bílunum.“
Mest lesið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira