Matur

Í eldhúsi Evu: Heimalagað tagliatelle með risarækjum og pastasósu

Eva Laufey skrifar
Þessi tagliatelle er hinn fullkomni pastaréttur.
Þessi tagliatelle er hinn fullkomni pastaréttur.

Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að hinum fullkomna pastarétti.

Heimalagað tagliatelle með risarækjum og pastasósu

Pastadeig

400 g hveiti 

3 egg 

4 eggjarauður 

1 ½ msk ólífuolía 

1 tsk salt



Aðferð:

Setjið hveiti á borðflöt og gerið holu í miðjuna á hveitinu, setjið egg, eggjarauður, salt og ólífuolíu í holuna og blandið öllum hráefnum saman með höndum.

Hnoðið deigið vel í nokkrar mínútur og sláið deiginu upp í kúlu, setjið plastfilmu yfir kúluna og geymið deigið í kæli í 30 – 40 mínútur. Skiptið deigið í þrjá hluta og fletjið hvern hluta út, í pastavél eða með kökukefli.

Skerið pastadeigið í þunnar lengjur eða notið pastavélina til þess að móta tagliatelle. Sjóðið í vel söltu vatni í þrjár mínútur. 



Risarækjur í tómata-og basilíkusósu

1 msk ólífuolía 

12 – 14 risarækjur

1 hvítlauksrif 

¼ rautt chili 

1 msk ólífuolía 

2 laukar 

2 hvítlauksrif

350 g saxaðir tómatar í dós eða passata 

1 kjúklingateningur 

1 msk smátt söxuð basilíka 

salt og pipar 

parmesan

Aðferð:

Hitið olíu á pönnu, saxið niður eitt hvítlauksrif og ¼ chilialdin, steikið í smá stund á pönnu og bætið síðan risarækjum út á pönnuna og steikið þar til þær eru orðnar bleikar. Takið þær af pönnunni og byrjið á sósunni (óþarfi að skola pönnuna á milli).

Hitið olíu á pönnu, saxið niður lauk og hvítlauk og steikið þar til laukurinn er orðinn glær í gegn. 

Bætið tómötum, kjúklingakrafti og smátt saxaðri basilíku út á pönnuna og kryddið til með salti og pipar. 

Leyfið sósunni að malla í nokkar mínútur og bætið risarækjunum út í lokin. 

Rétt áður en þið berið réttinn fram er gott að setja soðið pasta út í sósuna og rífa niður nóg af ferskum parmesan yfir réttinn. Berið strax fram og njótið. 

Verði ykkur að góðu!Vísir/Eva Laufey







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.