Lífið

Atriðið sem yfir 120 milljónir hafa séð á einum sólahring: „Þú bræddir hjartað mitt“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ótrúlegt atriði og Lynne mun fara langt í keppninni.
Ótrúlegt atriði og Lynne mun fara langt í keppninni.
Hin tólf ára Darci Lynne er gjörsamlega að gera allt vitlaust í Bandaríkjunum eftir frammistöðu sína í raunveruleikaþættinum America's Got Talent.

Hún mætti með brúðu upp á svið og kom síðan öllum á óvart með mögnuðu atriði. Lynne hefur alltaf verið gríðarlega feimin en brúðan hefur hjálpað henni mikið og söng hún alveg eins og engill á sviðinu.

Mel B var það hrifin að hún ýtti á gullhnappinn sem skilaði Lynne beint í úrslit í keppninni. Hér að neðan má sjá þetta magnaða atriði sem er með yfir hundrað og tuttugu milljónir áhorfa á rúmlega einum sólahringi. Tölur sem aldrei áður hafa sést í raunveruleikaþætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×