Þotuhreyflar, já, takk! Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 17. júní 2017 10:15 „Verkfræðin er tól sem maður getur notað í allt milli himins og jarðar,“ segir Bjarni Örn. Mynd/Sif Kjærnested
Ég er kominn úr útlegð í bili en fer svo aftur í framhaldsnám,“ segir Bjarni Örn Kristinsson, 24 ára, sem útskrifaðist nýlega með B.Sc. gráðu í flugvéla-og geimverkfræði frá MIT (Massachusetts Institute of Technology) sem samkvæmt QS University Ranking hefur verið besti háskóli heims síðustu ár. Bjarni Örn er sonur Örnu Sifjar Kærnested tölvunarfræðings og Kristins Ragnars Árnasonar fjármálastjóra. Hvers vegna varð flugvéla- og geimverkfræði fyrir valinu hjá honum? „Í menntaskóla fór ég í skiptinám til Japans í eina önn. Þá opnaðist heimurinn og ég áttaði mig á hvað það er gaman að kynnast fólki frá öllum heimshornum og mér fannst lítið mál að búa erlendis. Stefnan var því fljótt sett á nám erlendis. Á endanum stóð MIT upp úr. Það var ekki aðeins námið, heldur menningin og fólkið í skólanum sem togaði. Þar að auki ábyrgist MIT að veita nemendum fjárhagsaðstoð, óháð einkunnum og hvers lenskir þeir eru.“ En hafa Íslendingar þörf fyrir geimverkfræðinga? „Að minnsta kosti flugvélaverkfræðinga. Ég skoðaði að fara í tölvunarfræði sem annar hver nemandi er í, líka kjarnorku- og samrunaverkfræði sem væri erfiðara að fá vinnu við á Íslandi, en áfangar um þotuhreyfla og eldflaugar, já, takk! Stærsta hindrunin við að fá vinnu í þessu fagi í Bandaríkjunum er að fá öryggisheimild sem krefst ríkisborgararéttar í nánast öllum tilfellum. Án hennar fengi ég ekki að skúra gólfið í hönnunardeild Lockheed Martin.“ Hann reiknar þó með nokkurra ára veru í Bandaríkjunum. „Ég byrja á meistaranáminu í haust en til að komast í doktorsnámið þarf ég að standast röð stöðuprófa. Ég held áfram á meðan ég hef gaman af náminu og rannsóknarverkefnunum.“ Nú ætlar hann að njóta íslenska sumarsins og vinna í markaðsáhættu í Landsbankanum. „Verkfræðin er tól sem maður getur notað í allt milli himins og jarðar,“ segir hann. „Það er mikilvægt að byggja upp reynslu og þekkingu á mörgum sviðum.“
Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Menning Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira