Veiði

Góðar göngur og fín veiði í Elliðaánum

Karl Lúðvíksson skrifar
Oliver Jónasson með maríulaxinn sinn úr Elliðaánum.
Oliver Jónasson með maríulaxinn sinn úr Elliðaánum. Mynd: Jónas Örn
Veiðin í Elliðaánum fer vel af stað og virðast göngur í hana vera með ágætis móti sem gefur góðar vonir fyrir framhaldið í sumar.

Opnunin var ágæt eins og greint hefur verið frá og síðan þá hefur verið ágæt veiði og skot af göngum sem koma inn í ánna haldið veiðimönnum vel uppteknum.  Eins og venjulega er mikið líf í Sjávarfossi en Teljarastrengur er líka vel setinn af laxi.  Lax liggur víða á svæðinu frá Kerlingaflúðum að Ullarfossi og eins eru veiðimenn farnir að sjá laxa ofan stíflu við Árbæjarhyl, Breiðholtsstrengi og Hundasteinum.

Elliðaárnar eru líklega eitt af þeim veiðisvæðum sem eru mikið sótt og sérstaklega af fjölskyldufólki sem er að koma ungum veiðimönnum á bragðið.  Áinn er þægileg og auðveld fyrir byrjendur og það er líklega einsdæmi í heiminum að hafa jafn góða laxveiðiá í miðri borg.  Oliver Jónasson var við veiðar ásamt föður sínum Jónasi Erni og í þeirri ferð náði Óliver maríulaxinum sínum eins og sést á meðfylgjandi mynd en en það eru líklega fáar ár sem gefa jafn margar maríur og Elliðaárnar síðustu áratugina.






×