Lífið

Dóttir Sunnu öskraði þegar hún sá auglýsinguna af mömmu sinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sunna er ótrúlegur íþróttamaður.
Sunna er ótrúlegur íþróttamaður.
Bardagakonunni Sunnu „Tsunami“ Davíðsdóttur vissi ekki hvaðan á sér stóð veðrið þegar dóttir hennar öskraði þar sem þær óku eftir Miklubrautinni. Sunna greinir frá þessu á Facebook en dóttir hennar hafði öskrað: „Mamma, það er risastór mynd af þér þarna!“

Sunna áttaði sig ekki á því um hvað dóttir hennar var að tala svo hún ákvað að taka u-beygju á næstu gatnamótum.

Í ljós kom að um var að ræða auglýsingu Stöð 2 Sport fyrir bardaga hennar gegn Kelly D-Angelo þann 15. júlí. Auglýsingin er á vesturhlið höfuðstöðva 365 miðla í Skaftahlíð eins og sjá má á myndinni að neðan sem Sunna tók.

„Þetta er í fyrsta skipti sem mynd af mér birtist á svo stórri auglýsingu svo ég get strokað það af listanum,“ segir Sunna fylgjendum sínum á Facebook sem eru tæplega 27 þúsund.

MMA





Fleiri fréttir

Sjá meira


×