Lífið

Young Thug fékk sér smók í miðnætursólinni á Íslandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kappinn naut sín í botn hér á landi.
Kappinn naut sín í botn hér á landi.
Rapparinn Young Thug kom fram á tónleikunum Kronik Live í Laugardalshöllinni á föstudagskvöldið og var honum vel tekið.

Jeffery Lamar Williams heitir maðurinn og heldur hann úti snapchat-reikningnum @youngthug en hann fór mikinn hér á landi eftir tónleikana.

Hann átti ekki orð yfir miðnætursólinni hér á landi og sagði til að mynda: „Klukkan er tvö eftir miðnætti og ég var að koma af sviðinu. Ég er á Íslandi og það verður aldrei dimmt hérna. Algjörlega ótrúlegt.“

Í einu snappinu sést Young Thug í hettupeysu frá íslenska hönnunarfyrirtækinu Inklaw. Svo fékk rapparinn sér smók um miðja nótt hér á landi og virtist hann vera í miklu fjöri.

Hér að neðan má sjá upptöku af Snapchat-reikningi rapparans. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.