Fótbolti

Neymar: Næsta tímabil mitt mikilvægasta á ferlinum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Neymar er hann var með ljósa hárið síðasta vetur.
Neymar er hann var með ljósa hárið síðasta vetur. vísir/getty
Brasilíumaðurinn Neymar veit að það verður ætlast til mikils af honum á næstu leiktíð og hann er klár í að takast á við þær væntingar.

Þessi 25 ára gamli snillingur þarf að leggja sitt af mörkum til þess að Barcelona nái að bæta upp fyrir vonbrigðatímabil.

„Ég vona að þetta verði tímabil árangurs og gleði. Ég er að gera mig tilbúinn því þetta verður mikilvægasta tímabilið á mínum ferli,“ sagði Neymar.

„Ég er glaður og jákvæður. Það er eitthvað sem ég mun taka með mér inn í tímabilið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×