Og þetta eru engin smá mál, heldur risastórir samrunar á borð við kaup Haga á Lyfju og Olís, Skeljungs á Basko, N1 á Festi og Vodafone á 365. Oft heyrist kvartað yfir því að rannsóknir stofnunarinnar séu of tímafrekar, en miðað við þau mál sem liggja nú á borði hennar má vart búast við að það breytist í bráð.
Kynslóðaskipti
Með ráðningu Sigurðar Hannessonar sem framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins (SI) hafa sumir haft á orði að ákveðin kynslóðaskipti séu að verða hjá helstu hagsmunasamtökunum í Húsi atvinnulífsins.
Auk Sigurðar, sem er fæddur 1980, má nefna Halldór Benjamín Þorbergsson, sem stýrir Samtökum atvinnulífsins, og Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Þau Halldór Benjamín og Heiðrún Lind tóku til starfa á síðasta ári og eru bæði fædd árið 1979.

Tímaritið Frjáls verslun gaf út í liðinni viku sitt árlega tekjublað en ritstjóri þess hefur um árabil verið Jón G. Hauksson. Blaðið er hins vegar að öllum líkindum hans síðasta en sagt er að Jón muni brátt láta af störfum sem ritstjóri tímaritsins.
Greint var frá því fyrir skemmstu að Útgáfufélagið Heimur, sem var áður í eigu Benedikts Jóhannessonar fjármálaráðherra og stendur að útgáfu tímaritsins, leiti nú nýrra eigenda að Frjálsri verslun. Mjög hefur dregið úr starfsemi Heims að undanförnu og þannig stendur félagið ekki lengur að útgáfu tímaritanna Iceland Review, Vísbendingar og Skýja.
Skotsilfrið er óvægin innsýn inn í bakherbergi viðskipta og atvinnulífs á landinu. Pistillinn birtist í Markaðnum í Fréttablaðinu á miðvikudögum.