Yfirmaður hjá Icelandair, sem er grunaður um brot á lögum um verðbréfaviðskipti, var í slagtogi með að minnsta kosti þremur mönnum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Einn mannanna hlaut nýlega fangelsisdóm í Hæstarétti fyrir peningaþvætti, fíkniefnabrot og rekstur á spilavíti. Rannsókn beinist meðal annars að viðskiptum með hlutabréf í Icelandair Group sem gerð voru í nafni félags í hans eigu.
Mennirnir hafa allir verið yfirheyrðir. Heimildir Fréttablaðsins herma að á meðal sönnunargagna séu tölvupóstar sem hinn grunaði yfirmaður sendi til meintra samverkamanna sinna.
Rannsókn héraðssaksóknara beinist meðal annars að framvirkum samningi sem gerður var aðeins fáeinum dögum áður en Icelandair Group sendi frá sér tilkynningu til Kauphallarinnar 1. febrúar þar sem afkomuspá félagsins fyrir 2017 var lækkuð um liðlega þrjátíu prósent.
Mun rannsóknin jafnframt ná til lengra tímabils en einungis aðdraganda þess að félagið sendi frá sér umrædda afkomuviðvörun. Er þá sérstaklega til skoðunar hvort samstarf mannanna eigi sér lengri sögu.
Hinn grunaði yfirmaður átti í lok árs 2016 hlutabréf í Icelandair Group í eigin nafni að virði rúmlega níu milljónir á þáverandi gengi.
Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segir rannsókn málsins vera vel á veg komna. Óvíst sé þó á þessari stundu hvenær henni ljúki. Að öðru leyti vill hann ekki tjá sig um málið.
Þetta er í fyrsta sinn frá falli fjármálakerfisins sem héraðssaksóknari rannsakar mál er varðar meint brot í viðskiptum með bréf í skráðu félagi.
Fréttablaðið greindi frá því í fyrradag að Icelandair hefði í lok maí fengið upplýsingar um að starfsmaður þess hefði stöðu grunaðs í rannsókn vegna meintra brota á lögum um verðbréfaviðskipti. Var hann í kjölfarið sendur í leyfi frá störfum.
Fram kom í Fréttablaðinu í gær að eignir hefðu verið frystar vegna málsins en fjárhæðirnar sem um ræðir hlaupa á tugum milljóna króna.
