Lífið

So You Think You Can Snap: MK og MÍ byrja í undanúrslitunum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nú er komið að fyrstu viðureigninni í undanúrslitum í So You Think You Can Snap en að keppninni standa meðlimir Áttunnar.

20 framhaldsskólar taka þátt í So You Think You Can Snap og keppa um það hver sé með besta snapparann.

Keppnin fer fram á Snapchat-reikningi Áttunnar, Attan_official og líkt og á síðasta ári mun Vísir fylgjast vel með gangi mála. Sigurvegarinn fær Lenovo fartölvu frá Nýherja í verðlaun. Í fyrstu viðureign undanúrslitanna mætast Menntaskólinn á Ísafirði og Menntaskólinn í Kópavogi.

Andri Fannar keppir aftur fyrir hönd MÍ og einnig Eydís Einarsdóttir fyrir MK. Hér að ofan má sjá hvernig skólarnir stóðu sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.