Lífið

So You Think You Can Snap: Faldi sig inni í Toys"R"Us og hrækti framan í vin sinn

Snapchatkeppnin So You Think You Can Snap fór fram í fyrsta skipti á síðasta ári og fékk gríðarlega mikið áhorf. Mest horfðu 25 þúsund manns á keppnina á einum sólahring. Að keppninni standa meðlimir Áttunnar og er keppnin aftur farin af stað í ár.

20 framhaldsskólar taka þátt í So You Think You Can Snap og keppa um það hver sé með besta snapparann.

Keppnin fer fram á Snapchat-reikningi Áttunnar, Attan_official og líkt og á síðasta ári mun Vísir fylgjast vel með gangi mála. Sigurvegarinn fær Lenovo fartölvu frá Nýherja í verðlaun. Nú er komið að næstu viðureign er þar mætast Tækniskólinn og Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum.

Kristjana Freydís keppir fyrir hönd Framhaldsskólinn á Laugum og Freysteinn Sverrisson fyrir hönd VMA.

Hér að ofan má sjá hvernig skólarnir stóðu sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.