Lífið

Jamie Foxx og Katie Holmes eru hætt í feluleik

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fallegt par.
Fallegt par.
Leikararnir Katie Holmes og Jamie Foxx eru par og hafa greinilega ákveðið að hætta öllum feluleik í tengslum við samband sitt.

Myndir náðust af parinu á ströndinni í Malibu á mánudaginn þar sem þau leiddust og virkuðu mjög ástfangin.

Talið er að Holmes hafi samþykkt ákveðna skilmála í skilnaði sínum við Tom Cruise og var einn af þeim að hún mátti ekki vera í opinberu ástarsambandi í ákveðin tíma eftir skilnaðinn.

Svo virðist sem þessi tími sé liðinn en Holmes og Foxx eiga að hafa verið að slá sér saman alveg frá árinu 2013. Daily Mail greinir ítarlega frá sambandi þeirra og birtir umræddar myndir.

Fjölmiðlar ytra hafa lengi haldið því fram að þau séu saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.