Kynþokkafyllstu kleinuhringir landsins Garðar Kjartansson og Stefán Árni Pálsson skrifa 5. september 2017 11:30 Frá vinstri til hægri: Pálmi Gestsson, Jon von Tetzchner, Vigfús Bjarni, Jón Baldvin, Reynir Þór, Gunnar Bragi, Sveinn Andri og Jón Viðar.
Kynþokkafyllstu karlmenn Íslands eru margir með kleinuhring til að draga fram karlmannlegar andlitslínurnar.Margir eiga það sammerkt að gera sér fulla grein fyrir mikilvægi skeggtísku þegar útlitið er annars vegar. Skeggtíska getur verið með ýmsu móti og helgast af tíðarandanum hverju sinni. Helsta kyntákn sinnar tíðar, Clark Gable, var til að mynda með mjótt yfirvararskegg og þannig má lengi áfram telja. Þeir karlmenn dagsins í dag sem eru löðrandi í kynþokka eru hins vegar að vinna með kleinuhringinn, sem er sambland af yfirvararskeggi og svo geithafrinum eða hökutoppi.Clark Gable var með ómótstæðilega mottu.En, þeir raka hins vegar vangann og bera ekki barta. Eins og glögglega má sjá á meðfylgjandi myndum. Lífið fór í rannsóknarvinnu með nokkrum sérfræðingum og úr varð listi yfir kynþokkafyllstu kleinuhringi landsins.Dómnefndina skipa þau: Álfrún Pálsdóttir, ritstjóri Glamour, grínistinn Sólmundur Hólm, blaðamaðurinn Benedikt Bóas Hinriksson og blaðamaðurinn Hulda Hólmkelsdóttir. Hér að neðan má sjá flottustu karlmenn landsins sem skarta svokölluðum kleinuhring.Vigfús Bjarni Albertsson Séra Vigfús Bjarni Albertsson er með fullkominn kleinuhring. Hann hefur snyrt skeggið sitt á þann hátt í mörg ár og var Vigfús fyrstur á listann yfir þá allra kynþokkafyllstu.Stjörnulögfræðingurinn Sveinn Andri Sveinsson Sveinn hefur í gegnum tíðina verið með fallegan kleinuhring og bera fáir hann betur. Í dag er hann ekki að vinna með slíka skeggsnyrtingu en hann ætti heldur betur að taka hann upp á ný.Árangur áfram, ekkert stopp Framsóknarmaðurinn Gunnar Bragi Sveinsson þekkir kleinuhringinn mjög vel. Skeggið hefur í gegnum tíðina verið einskonar einkennismerki Framsóknarmannsins og ber hann kleinuhringinn ótrúlega vel. Því miður er Gunnar Bragi ekki með kleinuhring í dag en batnandi mönnum er best að lifa og vex skeggið sem betur fer aftur. Grjótharður kleinuhringur Jón Viðar Jónsson er einn þekktasti leiklistargagnrýnandi landsins. Hann sparar aldrei stóru orðin og hefur greinilega mikið sjálfstraust. Kleinuhringurinn er einfaldlega ástæðan þar sem hann er með einstaklega fallegt skegg.Euro-hringur Reynir Þór Eggertsson, betur þekktur sem Euro-Reynir, er einhver allra virtasti Eurovision-sérfræðingur þjóðarinnar. Reynir hefur verið með kleinuhring í mörg herrans ár og gjörsamlega neglir það fyrir allan peninginn.Guðfaðirinn Ingólfur Guðbrandsson, tónlistarmaður og ferðamálafrömuður, var í áraraðir með flottasta kleinuhring Íslandssögunnar. Ingólfur lést árið 2009 og kemst hann í frægðarhöll íslenskra kleinuhringja.Ingólfur er fyrirmynd allra í þessum málum.visir/gvaListinn er vissulega ekki tæmandi og komust margir á lista yfir þá allra flottustu. Hér að neðan má sjá mynd af þeim öllum. Lesendur Vísis geta sent inn myndir af flottum kleinuhringjum í athugasemdarkerfið hér að neðan. Öll myndvinnsla er eftir Garðar Kjartansson.Frá vinstri til hægri: Jon Von Tetzchner, Höskuldur Þórhallsson, Elfar Árni Aðalsteinsson, leikmaður KA í Pepsi-deildinni, Jón Baldvin Hannibalsson, Gunnar Nelson, Helgi Kolviðsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, Jón Arnar Magnússon, Pálmi Gestsson og Gylfi Ægisson.myndvinnsla Garðar.
Mest lesið Maríanna og Dommi trúlofuð Lífið Aðstoðarmennirnir og ástin Lífið Kúrekar og bandíttar í stuði á Kommablótinu Lífið Segist vera nasisti sem elskar Hitler Lífið Einhleypan: Grænkeri sem hrífst af hugrekki Makamál Lítil þolinmæði fyrir hrekk Audda Lífið Einhvern tímann var allt fyrst Lífið „Ég var mjög reiður út í heiminn í marga mánuði“ Lífið Prinsessan eignaðist dóttur Lífið Fyrsti kossinn átti sér stað í bílakjallara Lífið Fleiri fréttir Maríanna og Dommi trúlofuð Kúrekar og bandíttar í stuði á Kommablótinu Prinsessan eignaðist dóttur Segist vera nasisti sem elskar Hitler Lítil þolinmæði fyrir hrekk Audda Aðstoðarmennirnir og ástin Vefur um útivist í loftið Vetrarhátíð með gagnvirkri ljósasýningu hefst í dag Stjórnarandstaðan hræðist ekkert meðan ríkisstjórnin þori ekki út úr húsi „Ég var mjög reiður út í heiminn í marga mánuði“ Einhvern tímann var allt fyrst Berglind Festival, Hallgrímur Helga og Unnsteinn á sumarhryllingnum Mamma mætti á frumsýningu Fjallsins Frumsýning á Vísi: Óvæntir gestir hjá Væb-bræðrum Saknar ekki fullrar innkeyrslu af glæsikerrum Selur fantaflotta íbúð sem hann keypti af Birni Braga „Kemur í ljós að þetta er í raun einhverfa“ Kærasta Liam Payne tjáir síg í fyrsta sinn 340 fermetra listaverkahöll í Kópavogi Þriðja barn Gisele komið í heiminn Líkamsræktarfrömuður selur í Kópavogi Irv Gotti er látinn Halla og Björn létu sig ekki vanta á þorrablóti Álftaness Sleikurinn við Colin Farrell ógleymanlegur Hugsi yfir bílastæðamálum sem eru til skoðunar Peaky Blinders stjarna lét sig ekki vanta á The Damned Víðir hrasaði á þingi: Frjálsíþróttirnar björguðu Gulli Helga tók yfir og Sindri beið á kantinum Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Uppistandarar, ráðherrar og kempur á þorrablóti Vals Sjá meira