Lífið

Pör með sameiginlega Facebook síðu

Guðný Hrönn skrifar
Sumum þykir hentugt fyrirkomulag að deila Facebook-síðu með maka sínum. Pörin Beggi og Pacas og Svala og Davíð eru meðal þeirra.
Sumum þykir hentugt fyrirkomulag að deila Facebook-síðu með maka sínum. Pörin Beggi og Pacas og Svala og Davíð eru meðal þeirra.
Stór hluti landsmanna er með Face­book síðu enda er það góð leið til að halda sambandi við fólk. Flestir skrá sig sem einstakling á Facebook en sumir kjósa að skrá sig með maka sínum. Pörin Beggi og Pacas og Svala og Davíð eru meðal þeirra sem eru með parasíðu.

Parið Beggi og Pacas deila Facebook síðu en þeir hafa svo einnig hvor sína síðuna. „Við erum sem sagt með þrjár síður. Ástæðan fyrir sameiginlegu síðunni er sú að saman viljum við deila kærleika og hlýju með fólki. Og við erum með 5.000 vini á þeirri síðu þannig að við þurftum að opna nýjar síður. Maður getur víst ekki átt fleiri en 5.000 vini á Face­book,“ segir Beggi

Begga og Pacasi finnst mikilvægt að nota Facebook til að tengjast vinum og fjölskyldu. „Það er líka gott að vera með einstaklingssíðu til að fylgjast með fjölskyldunni í hröðu samfélagi.“

„Þetta virkar mjög vel, það skiptir máli að hafa gott tengslanet. Svo erum við Pacas mjög samrýndir og viljum deila gleði og hamingju,“ segir Beggi.

Hentugasta fyrirkomulagið„Ástæðan fyrir því að við erum með sameiginlega Facebook síðu er sú að við eigum flest alla vini okkar sameiginlega,“ segja þau Svala og Davíð en þau halda úti sameiginlegri síðu á Facebook. Þeim þykir því hentugasta fyrirkomulagið að vera með sameiginlega síðu.

„Þetta þykir okkur hentugt þegar eitthvað er um að vera, það fer þá ekki fram hjá öðru hvoru okkar. Og til hvers að hafa hvort sína síðuna þegar við getum haft hana sameiginlega? Þá er hægt að ganga beint að henni frekar en að þurfa alltaf að skrá sig út til að hinn geti skráð sig inn.“

„Facebook síður eru dægradvöl en ekki lífið. Ef fólki finnst skrítið að hafa sameiginlega síðu þá ætti það bara að prófa það til tilbreytingar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×