Innlent

Ekki megi nýta sér villu til kynmaka

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari.
Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari. Vísir/valli
Með frumvarpinu er tekinn af allur vafi um að sú háttsemi að hafa samfarir eða önnur kynferðismök við einstakling sem ekki tekur virkan þátt í hinni kynferðislegu athöfn eða sýnir algjört athafnaleysi, falli undir skilgreiningu nauðgunar.

Þetta segir í umsögn héraðssaksóknara um frumvarp sem fjórir þingmenn Viðreisnar lögðu fram á Alþingi í vor. Verði það að lögum væri samþykki sett í forgrunn í nauðgunarákvæði almennra hegningarlaga.

Héraðssaksóknari segir jafnframt til bóta að ákvæðið tiltaki að samþykki sem fengið er með blekkingum eða það að hagnýta sér villu viðkomandi um aðstæður sé ekki gilt.

„Þegar gerðar voru breytingar árið 2007 var tekið út úr lögunum sérákvæði um að refsivert væri að hafa kynferðismök við einhvern og hagnýta sér einhverja villu hans. Þetta átti að rúmast innan nauðgunarákvæðis,“ segir Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari.

Á þetta hafi reynt í svokölluðu Hótel Borgar-máli. Í því var bandarískur karlmaður kominn á hótelherbergi með konu. Maðurinn fór út úr herberginu. Annar maður kom inn og hafði mök við konuna sem vissi ekki að hún væri að hafa mök við rangan mann.

„Þarna var ákært fyrir nauðgun en Hæstiréttur taldi að ákvæðið eins og það væri myndi ekki ná til þessa. Niðurstaðan varð því blygðunarsemisbrot,“ útskýrir Kolbrún. Þarna myndi ákvæðið vera til bóta þar sem maðurinn hefði verið að nýta sér villu konunnar.

Ókosturinn sé hættan á því að fókusinn fari að snúast um það hvað brotaþoli gerði en ekki aðgerðir sakbornings.

„Svo þarf að hafa líka í huga að þetta mun ekki verða til þess að bæta sönnunarstöðuna. En þetta er ákveðin yfirlýsing frá löggjafanum um að kynferðisbrot eru kynmök án samþykkis,“ segir Kolbrún. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×