Lífið

Besti svitalyktareyðir í heimi úr matarsóda

Guðný Hrönn skrifar
Bergþór Pálsson og Albert Eiríksson búa til eigin svitalyktareyði út matarsóda.
Bergþór Pálsson og Albert Eiríksson búa til eigin svitalyktareyði út matarsóda.
„Við munum skoða stórkostlegan mátt matarins,“ segir Vala Matt spurð út í hvað hún muni bjóða upp á í innslagi sínu í Íslandi í dag í kvöld.

„Sjúkraþjálfarinn og bókahöfundurinn Lukka Pálsdóttir í Happi mun segja okkur í kvöld frá því hvernig við getum á mjög auðveldan hátt haldið okkur í kjörþyngd. Og svo kennir hún okkur að búa til dásamlegan súkkulaði-tedrykk sem hefur ótrúlega róandi áhrif. Einnig skoðum við hvernig má nota mat á ýmsan óvenjulegan máta. Albert Eiríksson og Bergþór Pálsson sýna okkur hvernig hægt er að búa til besta svitalyktareyði í heimi með matarsóda og sjónvarpskokkurinn flotti Ebba Guðný Guðmundsdóttir sýnir okkur til dæmis hvernig við getum hvíttað tennurnar á ansi óvenjulegan en náttúrulegan hátt,“ segir Vala.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.