Lífið

Saga Garðars og Snorri eiga von á barni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Snorri Helgason og Saga Garðarsdóttir hafa verið par í þrjú ár.
Snorri Helgason og Saga Garðarsdóttir hafa verið par í þrjú ár. VÍSIR/ANTON/DANÍEL
Leikkonan og grínistinn Saga Garðarsdóttir og tónlistarmaðurinn Snorri Helgason eiga von á barni. Þetta er fyrsta barn þeirra beggja og eru þau byrjuð að dreifa þessum gleðitíðindum. Á uppistandi í gær ræddi saga um að hún væri barnshafandi og Snorri hélt á dögunum pub quiz þar sem allar spurningarnar tengdust feðrum og föðurhlutverkinu.

Snorri og Saga hafa verið saman síðan árið 2014 og trúlofuðu sig fyrr á þessu ári. Saga birti svo í gær mynd af Snorra að lesa bókina Að eignast barn.

Lífið óskar parinu innilega til hamingju.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.