Bíó og sjónvarp

Kynferðisbrot kvikmyndaframleiðanda komu Trump ekki á óvart

Kjartan Kjartansson skrifar
Trump og Weinstein með Melaniu Trump og Georginu Chapman árið 2009.
Trump og Weinstein með Melaniu Trump og Georginu Chapman árið 2009. Vísir/AFP

Demókratar í Bandaríkjunum keppast nú við að skila fé sem Harvey Weinstein, kvikmyndaframleiðandi, gaf í sjóði þeirra í kjölfar umfjöllunar um áralöng kynferðisbrot gegn konum. Donald Trump forseti segir að uppljóstranirnar komi honum ekki á óvart.

Framferði Weinstein í gengum tíðina komst í hámæli í vikunni eftir að New York Times birti ásakanir leikkvennanna Ashley Judd og Rose McGowan á hendur honum um kynferðislega áreitni og óviðeigandi framkomu.

Síðan þá hefur verið greint frá fleiri ásökunum um kynferðislega tilburði Weinstein gegn konum. Þannig sagði sjónvarpskona frá því að hann hefði fróað sér fyrir framan hana á fínu veitingahúsi í New York.

Weinstein hefur látið mikið fé af hendi rakna til kosningasjóða demókrata í gegnum tíðina. Landsnefnd flokksins hefur tilkynnt að hún ætli að gefa 30.000 dollara sem komu frá Weinstein í fyrra til góðgerðamála. Nokkrir þingmenn flokksins ætla að gera slíkt hið sama.

Sagðist hafa þekkt Weinstein lengi

Trump var spurður út í mál Weinstein í gær og sagðist hann þá ekki hissa á ásökununum, að því er segir í frétt Politico.

„Ég hef þekkt Harvey Weinstein í langan tíma. Þetta kemur mér alls ekki á óvart,“ sagði forsetinn.

Eins og fram kom í kosningabaráttunni í fyrra er Trump sjálfur ekki ókunngur kynferðisáreiti gegn konum. Þannig var rifjuð upp gömul upptaka þar sem Trump talaði digurbarkalega um að hann gæti „gripið í píkuna“ á konum í krafti frægðar sinnar.

Þegar Trump var spurður í gær um líkindi máls Weinstein við sín eigin endurtók hann fyrri málsvörn sína um að þar hefði verið á ferðinni „búningsklefatal“.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.