Tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 7. október 2017 09:15 "Það eru margir búnir að hringja í mig og bjóðast til að vera + 1 með mér í ferðinni til New York,“ segir Inga Hlín hlæjandi. Vísir/Ernir „
Ég fékk þessar fréttir í gær og er að reyna að átta mig á þeim. Þær komu mér ánægjulega á óvart,“ segir Inga Hlín Pálsdóttir um tilnefningar sem hún hefur hlotið í þremur flokkum til Stevie Awards verðlaunanna, sem ætluð eru framúrskarandi konum í atvinnulífinu á heimsvísu og verða afhent í New York 17. nóvember. Inga Hlín stýrir markaðsmálum á sviði ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu sem er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda. Flokkarnir sem hún er tilnefnd í hjá Stevie Awards eru: umbótamaður ársins, stjórnandi ársins og kona ársins. „En ég er ekki búin að fá verðlaunin,“ tekur hún fram. Kveðst þó pottþétt fara út til New York. „Það eru margir búnir að hringja og bjóðast til að vera + 1 með mér! Hverju þakkar hún þennan heiður? „Rúna Magnúsdóttir heitir konan sem tilnefndi mig. Ef ég las rétt í gær þá eru 170 dómarar sem fara í gegnum alla sem þykja hæfir í þetta ferli og velja svo úr þeim. Þetta er ekki netkosning.“ Inga kveðst hafa byrjað hjá Útflutningsráði fyrir ellefu árum og hjá Íslandsstofu fyrir sjö árum. „Inspired by Iceland er raunverulega mitt fyrsta markaðsverkefni og ég hef stýrt því og þróað það. Við notum það vörumerki í allri markaðssetningu erlendis fyrir ferðaþjónustuna og það verður bara sterkara og sterkara. Á mánudaginn kynnum við nýja vegferð í því verkefni.“ En Inga Hlín kveðst langt í frá eiga heiðurinn ein. „Við erum að vinna með hundruðum fyrirtækja og áherslurnar eru afsprengi mikillar samvinnu og samtals. Ég tala mikið erlendis og þar þykir samstarfið hér landi sérstakt og að við vinnum undir einu merki þykir merkilegt. Aðrar þjóðir öfunda okkur af því fyrirkomulagi.“ Engin íslensk kona hefur komist svona langt í Stevie Awards en hin danska Janne Sigurðsson hlaut gullverðlaun Stevie sem forstjóri ársins 2012. Hún var þá forstjóri Fjarðaáls á Reyðarfirði.
Mest lesið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Úr Idolinu yfir í útvarpið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Lífið Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið Tónlist Hjem til jul aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Norðlenskur útsýnisdraumur „Hvar eru allir herramennirnir?“ Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag Hittast á hlutlausum stað Risavaxinn mörgæsarungi nýjasta stjarna Melbourne Magnaðar myndir af lengstu á landsins Seldu Kolbeini Sigþórs og keyptu í miðbænum Tóku hraðanum misalvarlega en hlupu fyrir langveik börn Sjá meira