Vippaði hákarli úr lauginni, eins og maður gerir Samúel Karl Ólason skrifar 11. október 2017 15:14 Hákarlinn var fastur í lauginni og Melissa segist hafa fundið til með honum.
Ástralskur fasteignasali gerði sér lítið fyrir og stakk sér til sunds í sjávarlaug í Oak Park nærri Melbourne. Það væri svo sem ekki frásögum færandi ef ekki hefði verið fyrir hákarlinn sem var í lauginni. Konan stakk sér til sunds til þess að ná hákarlinum og kasta honum úr lauginni. Um er að ræða laug sem hafði verið steypt upp á ströndinni. Hákarlinn er ekki stór en þrátt fyrir það hefur myndbandið verið í gífurlegri dreifingu eftir að fasteignasalan sem Melissa Hatheier vinnur hjá birti myndband af hákarlaveiðum hennar. Sjálf segist hún hissa á athyglinni. „Ég var bara að reyna að ná litlum hákarli. Ef hann hefði haft stórar tennur hefði ég ekki gert þetta,“ sagði Melissa við St George and Sutherland Shire Leader. Hún segir hákarlinn hafa verið um metra að lengd og að annað hvort hefði verið um Port Jackson eða Wobbegong hákarl að ræða. Hákarlinn var fastur í lauginni og Melissa segist hafa fundið til með honum. Henni tókst að reka hann upp í grynningar laugarinnar þar sem hún segist hafa skutlað sér á hann. Hún passaði sig að taka utan um hausinn á honum svo hann gæti ekki bitið hana og tókst að kasta honum út fyrir laugina.
Mest lesið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Úr Idolinu yfir í útvarpið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Lífið Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið Tónlist Hjem til jul aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Norðlenskur útsýnisdraumur „Hvar eru allir herramennirnir?“ Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag Hittast á hlutlausum stað Risavaxinn mörgæsarungi nýjasta stjarna Melbourne Magnaðar myndir af lengstu á landsins Seldu Kolbeini Sigþórs og keyptu í miðbænum Tóku hraðanum misalvarlega en hlupu fyrir langveik börn Ebba Katrín og Oddur keyptu hús í miðbænum Sjá meira