Lífið

Sigmundur Davíð fékk hestinn að gjöf í beinni útsendingu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Þorbjörn Þórðarson, fréttamaður, með hestinn góða í kvöld.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Þorbjörn Þórðarson, fréttamaður, með hestinn góða í kvöld.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, fékk forláta silfurhest að gjöf frá Þorbirni Þórðarsyni, fréttamanni, í beinni útsendingu í Kosningasjónvarpi Stöðvar 2 fyrr í kvöld.

Forsíðumynd Fréttablaðsins í gær vakti töluverða athygli en þar var Sigmundur Davíð ásamt formönnum annarra flokka og hélt á hestinum silfraða en um er að ræða „props“ af fréttastofu 365.

Ekki var annað en að sjá en Sigmundur Davíð væri ánægður með þessa gjöf sem honum var veitt til minningar um þessar kosningar og um stofnun Miðflokksins en merki flokksins er einmitt prjónandi hestur.

Myndband af þessu skemmtilega mómenti má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.