Lífið

David Beckham og Björgólfur í dúndurformi á ströndinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi mynd var tekinn af þeim félögum á íshokkíleik árið 2016.
Þessi mynd var tekinn af þeim félögum á íshokkíleik árið 2016.
Kaupsýslumaðurinn Björgólfur Thor og Bretinn David Beckham eru mjög góðir vinir og hafa fjölskyldur þeirra verið saman í fríi í Bandaríkjunum undanfarna daga eins og Vísir greindi frá um helgina.

Daily Mail birtir heljarinnar umfjöllun um fríið og þar má sjá Björgólf og David Beckham saman á ströndinni ásamt börnum þeirra.

Þar má glögglega sjá að þeir félagarnir eru báðir í hörkuformi. David Beckham sem er 42 ára lék stærstan hluta knattspyrnuferils síns  með Manchester United en síðar fór hann til Real Madrid og Los Angeles Galaxy. Undir lok ferils síns tók hann svo stutt stopp hjá AC Milan og Paris Saint German. Lék hann yfir 100 landsleiki fyrir enska landsliðið og bar fyrirliðabandið um hríð.

Björgólfur Thor Björgólfsson er á lista Forbes yfir ríkustu menn heims en hann komst fyrst á listann árið 2005 en hann er metinn á 1,8 milljarða bandaríkjadala.

Hér má sjá umfjöllun Daily Mail um vinina sem virtust skemmta sér konunglega á ströndinni í Los Angeles um helgina.

Hér að neðan má sjá tíst sem Máni Steinn Ómarsson birti á Twitter en þar má sjá þá félaga saman á ströndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.