Aron: Sagði í fyrsta alvöru viðtalinu 15 ára að Barcelona væri draumaklúbburinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2017 14:30 Aron Pálmarsson. Vísir/EPA
Draumur Arons Pálmarssonar er að rætast nú þegar hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning við spænsku meistarana í Barcelona. Þetta kemur fram á heimasíðu Meistaradeildar EHF. Barcelona náði samkomulagi við ungverska félagið Veszprem um að kaupa upp restina af samningi Arons sem hafði ekki æft með ungverska liðinu frá því að hann mætti ekki á fyrstu æfingu undirbúningstímabilsins og Ungverjarnir fóru í hart. Bæði félög staðfestu félagsskipti íslenska landsliðsmannsins í dag og á heimasíðu Meistaradeildarinnar er fjallað um þessar risafréttir í heimi handboltans og auk þess að vitnað er í gamalt viðtal við Aron. „Ég held að ég hafi sagt það í fyrsta alvöru viðtalinu mínu þegar ég var fimmtán ára að draumaklúbburinn væri Barcelona,“ er haft eftir Aroni upp úr gömlu viðtali í umfjöllun ehfcl.com um félagsskipti Arons."I said in my first real interview when I was 15 that my dream club would be Barcelona," Palmarsson on his new club: https://t.co/VXvKWLOfQPpic.twitter.com/treBKCFnmu — EHF Champions League (@ehfcl) October 23, 2017 Það þarf ekki að koma mikið á óvart að heimasíða Meistaradeildarinnar hafi áhuga á nýjasta leikmanni Barcelona enda ætlar spænska liðið sér að komast langt í Meistaradeildinni í ár og Aron er auk þess leikmaður sem hefur tvisvar sinnum verið kosinn besti leikmaður úrslitahelgar Meistaradeildarinnar. Aron skoraði átta mörk á móti Barcelona í leiknum um þriðja sætið í Meistaradeildinni síðasta vor en Veszprem vann þá 34-30 sigur á spænska liðinu og tryggði sér bronsið. Aron hefur verið fastamaður á úrslitahelgi Meistaradeildarinnar með liðum sínum undanfarin ár en á undan Veszprem spilaði hann með þýska stórliðinu Kiel. Fyrsti leikur Arons Pálmarssonar með Barcelona í Meistaradeildinni gæti verið á móti króatíska liðinu HC PPD Zagreb 4. nóvember næstkomandi.
Handbolti Tengdar fréttir Aron Pálmarsson búinn að semja við Barcelona Aron Pálmarsson er orðinn leikmaður spænska stórliðsins Barcelona og getur loksins farið að spila handbolta á nýjan leik. 23. október 2017 08:52 Aron viðurkenndi að hafa gert alvarleg mistök og slapp við tveggja ára bann Aron Pálmarsson er laus úr prísundinni hjá ungverska félaginu Veszprém og getur nú farið að spila handbolta á nýjan leik eftir mjög erfitt haust. Veszprém fer yfir sína hlið á málinu á heimasíðu sinni. 23. október 2017 11:00 Mest lesið Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Tók einn og hálfan tíma að finna ungu hjólreiðakonuna sem lést Sport Ekki ánægður með stöðu Hákons Rafns Fótbolti Landsliðshópurinn: Sverrir kemur inn og Brynjólfur valinn Fótbolti Margbrotnaði á andliti, gæti verið dofinn fyrir lífstíð en ætlar að spila áfram Sport Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Enski boltinn Sakar leikmenn United um leti á æfingum Enski boltinn Þúsund Walesverjar í Dalnum og Åge kallar eftir hjálp Fótbolti Snýr aftur heim í KR Íslenski boltinn Dæmdi ekki í Meistaradeildinni eftir að hafa hótað að drepa leikmann Fótbolti Fleiri fréttir Íslendingaliðið með fullt hús stiga eftir fimm umferðir Þórir sáttur með eftirmanninn: „Hann er sá rétti“ Magdeburg í úrslit fjórða árið í röð Bjarki Már í úrslit á kostnað Barcelona Arftaki Þóris fundinn: „Þetta eru stórir skór að fylla í“ Lilja tognuð á ökkla og frá næsta mánuðinn Guðmundur og Arnór fögnuðu góðum sigri Greið leið fyrir Bjarka, Ómar og Gísla í undanúrslit HM Elliði Snær frábær í sigri Gummersbach Bjarki með átta gegn Brössum Tap gegn Tékkum í lokaleiknum Þorsteinn Leó fór hamförum „Varnarleikurinn var skelfilegur” FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Tíu marka sigur Íslands Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Sjá meira
Aron Pálmarsson búinn að semja við Barcelona Aron Pálmarsson er orðinn leikmaður spænska stórliðsins Barcelona og getur loksins farið að spila handbolta á nýjan leik. 23. október 2017 08:52
Aron viðurkenndi að hafa gert alvarleg mistök og slapp við tveggja ára bann Aron Pálmarsson er laus úr prísundinni hjá ungverska félaginu Veszprém og getur nú farið að spila handbolta á nýjan leik eftir mjög erfitt haust. Veszprém fer yfir sína hlið á málinu á heimasíðu sinni. 23. október 2017 11:00