Fangaði hljóða stund og athygli ritstjóra Stefán Þór Hjartarson skrifar 20. október 2017 10:15 Ritstjóra verkefnisins sem Íris tók þátt í fannst hún fanga hljóða stund sonar síns einstaklega vel. Vísir/Anton Brink „
National Geographic gefur út ákveðin verkefni sem ég hef verið að taka þátt í. Ég hef verið að fá dálítið af kommentum á myndirnar og ritstjórarnir hafa verið að „favorite-merkja“ þær. Nýlega var birt ein mynd eftir mig í svokölluðu „story“ sem birtist á síðunni þeirra,“ segir Íris Bergmann ljósmyndari en mynd frá henni var valin til birtingar á vefsíðu National Geographic nú á dögunum. Hún var í hópi 30 mynda sem voru valdar en heildarfjöldi innsendra mynda var um 21.000 stykki, hvorki meira né minna. Þetta þýðir líka að myndin hennar Írisar gæti ratað á síður National Geographic. „Ritstjórar á blaðinu búa til verkefni sem eru með ákveðin konsept – þetta hét t.d. „Quiet moments“. Þeir senda út alls konar upplýsingar um hvað þeir vilja sjá. Það er hægt að senda þrjár myndir inn í hvert verkefni og svo velja þeir eftir því hvernig myndin talar til þeirra. Ég hef tekið þátt í a.m.k. þremur verkefnum og þeir hafa gefið mér „favorite“ og sagt eitthvað um myndirnar – það finnst mér rosalega gaman. Ég hef fylgst með þessu blaði síðan ég var krakki þannig að þetta er mjög stórt.“ Mynd Írisar sýnir son hennar við borð að leika sér að taflborði. David Y. Lee, einn ritstjóra blaðsins, segir meðal annars um myndina að hún fangi vel hversu einbeittur drengurinn er og það að hann sé að læra að tefla í stað þess að leika sér í tölvu eða að horfa á sjónvarpið. Honum finnst ákvörðunin um að hafa myndina svarthvíta góð, enda undirstriki það hversu hljótt augnablikið er og að víður ramminn komi því vel á framfæri að hann sé þarna einn með taflborðinu. „Ég er mjög mikið að taka myndir af stráknum mínum og börnunum mínum, það er rosalega gaman fyrir svona konu úti í bæ að fá viðurkenningu fyrir það. Ég fékk líka póst bara núna í morgun þar sem mér var tjáð að myndin væri orðin „most favorite“ af öllum 30 myndunum. Núna sést hún mjög vel á síðunni.“ Þetta var þó ekki í fyrsta skiptið sem ritstjórn vefsíðu National Geographic er hrifin af ljósmyndum Írisar því að mynd eftir hana var einnig valin sem ein af 12 bestu innsendu myndunum þann 14. mars síðastliðinn. „Þá var það bara mynd sem var ekkert í neitt sérstakt verkefni, þá fer hún í svona daglegt val, kallað „Daily Dozen“ – þá eru 12 myndir valdar á hverjum degi. Það koma svona 7-10 þúsund myndir á dag. Þetta var mynd sem ég tók út um gluggann og hún fangaði augnablikið, það var það sem greip þann ritstjóra.“Mynd Írisar má finna hér.
Mest lesið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Úr Idolinu yfir í útvarpið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Lífið Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið Tónlist Hjem til jul aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Norðlenskur útsýnisdraumur „Hvar eru allir herramennirnir?“ Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag Hittast á hlutlausum stað Risavaxinn mörgæsarungi nýjasta stjarna Melbourne Magnaðar myndir af lengstu á landsins Seldu Kolbeini Sigþórs og keyptu í miðbænum Tóku hraðanum misalvarlega en hlupu fyrir langveik börn Ebba Katrín og Oddur keyptu hús í miðbænum Sjá meira