Lífið

Íslensk kjötsúpa í norskri vegasjoppu

Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir skrifar
Spisekroken eða Matkrókurinn er í smábænum Jessheim.
Spisekroken eða Matkrókurinn er í smábænum Jessheim.
Veitingamaðurinn Steinar Agnarsson og eiginkona hans, Kristín Hjálmarsdóttir, ákváðu að söðla um eftir þriggja og hálfs árs búsetu í norska bænum Sandane og flytja með alla fjölskylduna til Jessheim og reyna þar fyrir sér í veitingasölu.

Sagt er frá áætlunum Steinars á fréttasíðunni Nýja Ísland, www.nyjaisland.no sem er nýlegur fréttamiðill þar í landi. Ritstjóri vefsins er Sigurður Rúnarsson og á vefnum er að finna fjölbreyttar fréttir og fróðleik af samlöndum okkar þar í landi.

Íslensk fjölskyldujól í Noregi. Frá vinstri Kristín Hjálmarsdóttir, sonurinn Agnar Baldur Steinarsson, dóttirin Sólveig Heiða Steinarsdóttir og Steinar Agnarsson
Steinar hefur verið viðloðandi eldamennsku og framreiðslu í veislum í yfir 40 ár en allra síðustu árin hefur hann búið og starfað við bátasmíðar í Sandane. Hann hefur fest kaup á rekstri og húsnæði Spisekroken og hefur stórar hugmyndir um framtíð rekstursins og segist nú vera að skipuleggja splunkunýjan matseðil.

Ásamt því að bjóða upp á rammíslenska kjötsúpu þá verður einnig hægt að fá hefðbundinn norskan skyndibita.

„Er núna að vinna í að fá íslenska hangirúllu og úrbeinað hangikjöt, ætla að reyna að bjóða upp á jólamat fyrir landann með uppstúf og stöppu. Svo verður það gamla góða íslenska kjötsúpan og svo fiskréttir.“

„Annars er þetta erfitt að eiga við, ég er mest með fastakúnna sem vilja bara þetta gamla norska,“ segir Steinar, en hann stefnir á opnun þann 15. nóvember næstkomandi.

Eldar mat í gömlum bókabíl
Fyrrverandi bókabíll sem er verðandi matsölustaður á hjólum.
Þetta er ekki frumraun Steinars í að selja mat til vegfarenda. Hann rak um árabil veitingabíl á Íslandi undir nafninu Matreiðin. Þann bíl seldi hann til Hamborgarafabrikkunar áður en hann flutti búferlum til Noregs.

En Steinar er stórhuga og hefur, auk þess að festa kaup á vegasjoppunni Spisekroken, einnig keypt nýja Matreið hér í Noregi. Sá bíll gegndi áður hlutverki bókabíls og er nú á verkstæði í Ósló þar sem hann verður innréttaður fyrir matsölu.

„Bíllinn verður staðsettur í Strømmen á virkum dögum og svo á ferð og flugi á hátíðum um helgar í sumar. Það verður enginn svikinn af matnum okkar,“ segir Steinar sem vonar að íslensk kjötsúpa muni slá í gegn hjá Norðmönnum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.