Lífið

Channing Tatum með rándýra innkomu sem þáttastjórnandi hjá Kimmel

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tatum getur svo sannarlega dansað.
Tatum getur svo sannarlega dansað.
Jimmy Kimmel hefur ákveðið að taka sér nokkra daga í frí og verða því aðeins gestaþáttastjórnendur í þessari viku í spjallþættinum vinsæla.

Ástæðan er sú að sonur Kimmel fer á næstunni í stóra hjartaaðgerð en hann fæddist fyrr á þessu ári.

Körfuboltagoðsögnin Shaquille O'Neal reið á vaðið, því næst mætti rokkarinn Dave Grohl og nú var komið að leikaranum Channing Tatum.

Tatum hélt mjög góða upphafsræðu þættinum, fékk til sín gesti og gerði allt sem Jimmy Kimmel er vanur að gera eins og sjá má hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.