Lífið

Ræddi opinskátt um kynlíf: „Vildi bara vera í einni stellingu og það var ekkert voðalega heitt“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kara Kristel fór yfir málin með Kjartani og Hjörvari í morgun.
Kara Kristel fór yfir málin með Kjartani og Hjörvari í morgun.
Kara Kristel heldur úti vinsælu kynlífsbloggi og var hún mætt í Brennsluna á FM957 í morgun og ræddi við þá Kjartan Atla Kjartansson og Hjörvar Hafliðason um kynlíf.

„Það er allt of lítið talað um kynlíf miðað við hvað það er algengt,“ segir Kara sem opnaði síðuna 6. október á afmælisdegi sínum.

„Ég á bara eina vinkonu sem hefur sett eitthvað út á þetta en allir aðrir styðja við bakið á mér.“

Hún segir að sú færsla sem hafi vakið mesta athygli fjalli um fyrsta kynlífið eftir fæðingu en Kara er sjálf móðir.

„Það er svo ótrúlega mikið af ranghugmyndum um kynlífið eftir fæðingu. Ég var alltaf að heyra að stelpur yrðu víðar eftir fæðingu og það er alls ekki þannig. Svo getur einnig myndast ákveðin hræðsla hjá manni ef maður rifnar til að mynda eftir fæðingu.“

Hún segir að sín fyrsta reynsla af kynlífið eftir fæðingu hafi verið mjög góð. Hún skrifar töluvert um sína reynslu frá kynlífi en hvernig taka strákarnir í það?

„Þeir taka allir bara mjög vel í þetta. Ég hef verið neikvæð í einni færslu og sá gaur tók best í það. Þá var ég í raun að segja hversu leiðinlegt það væri að ríða honum og hvað allt hefði verið ömurlegt og ég beilaði bara um miðja nótt.“

Hún segir að hann hafi fengið að lesa færsluna áður en hún birti hana.

„Hann var bara mjög flottur og hækkaði vel í áliti hjá mér eftir þetta. En ég ætla ekki að sofa hjá honum aftur. Hann vildi bara vera í einni stellingu og það var ekkert voðalega heitt.“

Hér að neðan má hlusta á þetta skemmtilega spjall við Köru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.