Lífið

Jessie J mætir aftur á klakann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þegar söngkonan kom síðast fram hér á landi í september 2015.
Þegar söngkonan kom síðast fram hér á landi í september 2015. vísir/Anton
Jessie J mun koma fram á tónleikum í Laugardalshöllinni 18.apríl á næsta ári. Söngkonan kom fram á tónleikum hér á landi í september 2015.  Laugardalshöll 18. apríl.

Síðast seldist upp á hljómleika Jessie J á innan við sólarhring. Miðasala hefst þriðjudaginn 7. nóvember á tix.is. 

Jessie J á meðal annars risasmellina Price Tag, Bang Bang, Domino, Do it Like a Dude, Flashlight, Masterpiece og fleiri.

Jessie J kom fyrst á sjónarsviðið árið 2011 með fyrstu plötunni sinni Who You Are en á þeirri plötu komust sex lög á topp tíu í Bretlandi en lagið Price Tag fór í efsta sætið um allan heim. Er hún fyrsti kvenmaðurinn til að ná sex lögum af sömu plötu inn á topp 10. 

Lagið Domino kom svo næst og fór það beint í efsta sæti um allan heim en með því lagi náði Jessie J fótfestu í Bandaríkjunum. Með ofursmellnum Bang Bang, þar sem hún fær Ariana Grande og Nicky Minaj með sér, er hún virkilega búin að stimpla sig inn sem ofurstjörnu.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.