Lífið

Steindi í þungu verki með Pálma Gests og Kristbjörgu Kjeld

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pálmi, Ragnar fasteignasali og Kristbjörg í mjög þungu verki.
Pálmi, Ragnar fasteignasali og Kristbjörg í mjög þungu verki. vísir/vilhelm
„Þarna er ég að leika Ragnar fasteignasala sem lendir í því að keyra á Gísla Örn leikara,“ segir Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., en hann var á sviðinu með Pálma Gestssyni og Kristbjörgu Kjeld í Borgarleikhúsinu í gær við tökur á Steypustöðinni.

Steindi segir að Gísli Örn hreinlega látist í höndunum á Ragnari fasteignasala og hinsta ósk Gísla sé að Ragnar taki við keflinu og klári hans hlutverk.

„Þarna þurfti Ragnar fasteignasali að stökkva upp í Borgarleikhús með mjög litlum fyrirvara og taka þátt í mjög þungu verki.“

Steinþór og Kristbjörg tóku sig vel út uppi í Borgarleikhúsinu.
Steindi skrifaði aðra þáttaröðina af Steypustöðinni ásamt Sögu Garðarsdóttur, Auðunni Blöndal, Ágústi Bent og Sverri Þór Sverrissyni. Hópurinn hefur verið í tökum undanfarnar vikur.

„Tökurnar hafa gengið eins og í sögu og alltaf hrikalega góður andi á setti. Ég held að undirstaðan af góðu gríni sé góð stemning á tökustað. Ef stemningin er súr þá sést það alveg í sjónvarpinu.“

Steindi, Auddi, Sveppi, Saga og María Guðmundsdóttir fara með helstu hlutverkin í næstu þáttaröð, en hún fer í loftið í janúar á Stöð 2.

„Fyrsta serían var mjög góð en ég er ekki frá því að þessi sé enn betri.“

Pálmi tekur hlutverkinu mjög alvarlega.
Sveppi mætti á sett.
María Guðmundsdóttir fer með eitt af aðalhlutverkunum í Steypustöðinni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.