Stærsti hluthafi Eimskips skoðar sölu á 25 prósenta hlut Hörður Ægisson skrifar 21. nóvember 2017 23:48 Miðað við núverandi markaðsvirði Eimskip er 25,3 prósenta hlutur Yucaipa metinn á um tæplega 14 milljarða króna.
Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Yucaipa hefur ákveðið að kanna mögulega sölu á á allt að fjórðungshlut sínum í Eimskip. Þetta kemur fram í tilkynningu sjóðsins til Kauphallarinnar fyrr í kvöld. Þar segir að Yucaipa hafi ákveðið að leggja mat á stöðu sína sem hluthafi í Eimskip, með tilliti til áframhaldandi eignarhalds eða mögulegrar sölu á hlut sínum í heild eða hluta. Hefur Yucaipa ráðið til sín Deutsche Bank og verðbréfafyrirtækið Fossa markaða sem ráðgjafa. Miðað við núverandi markaðsvirði Eimskip er 25,3 prósenta hlutur Yucaipa metinn á um tæplega 14 milljarða króna. Í tilkynningu fjárfestingasjóðsins er rifjað upp að Yucaipa hafi tekið þátt í fjárhagslegri endurskipulagningu Eimskips og aðstoðað félagið við skráningu þess á hlutabréfamarkað árið 20102. Ákvörðun um framhaldið kann að fela í sér sölu alls hlutafjár Yucaipa í Eimskip eða hluta, annaðhvort í útboði eða með beinum viðskiptum. „Allar ákvarðanir Yucaipa um sölu verða háðar aðstæðum á fjármálamörkuðum og í efnahagsumhverfinu almennt,“ að því er fram kemur í tilkynningu.
Mest lesið Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Efling hafi líklega sett Íslandsmet í óhróðri Bogi í Icelandair kaupir einbýlishús af Pétri í Eykt Fyrrverandi þingmenn vilja verða forstjórar Kríu Sjá meira