Það er líklega ekki villtasti draumur aðdáenda hins goðsagnarkennda Porsche 911 bíls að hann verði tengiltvinnbíll, en Porsche hefur hinsvegar tekið ákvörðun um það að bjóða hann meðal annars í slíkri útfærslu. Það verður þó ekki fyrr en með andlitslyftingu næstu kynslóðar bílsins og þá líklega ekki fyrr en árið 2022-3.
Porsche aðdáendur ættu aldeilis ekki að taka þessum fréttum illa því Porsche hefur lukkast einkar vel að búa Cayenne jeppann og Panamera stóra fjölskyldubílinn sem tengitvinnbíla. Panamera Turbo S E-Hybrid tengiltvinnbíllinn er nú einu sinni öflugasta gerð Porsche bíla sem framleiddur er nú um stundir og heil 680 hestöfl.
Drægnin í nýjum Porsche 911 með rafmótorum verður að lágmarki 60 kílómetrar eingöngu á rafmagninu, að sögn forstjóra Porsche, Oliver Blume. Tilkoma rafmótora í viðbót við hinar öflugu vélar sem í Porsche 911 er verður aðeins til að auka afl og mikla upptöku bílanna, sem næg er nú fyrir.
Prufanir eru hafnar á tengiltvinnbílaútfærslu 911 bílsins og eins og fyrri daginn hjá Porsche verður hann ekki settur á markað fyrr en fullkomnun hans verður náð.
Bílar