Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga í samstarf með einum stærsta banka Spánar Daníel Freyr Birkisson skrifar 4. desember 2017 10:39 Georg Lúðvíksson er forstjóri Meniga og einn stofnenda. vísir/valli
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Meniga hefur samið við einn stærsta banka Spánar um samstarf í innleiðingu netbankalausna Meniga og að bjóða viðskiptavinum bankans persónulegri notendaupplifun. Bankinn sem um ræðir heitir Ibercaja og hafa rúmlega milljón viðskiptavinir hans nú aðgang að hugbúnaði Meniga. Fyrsta skrefið í innleiðingunni mun leiða af sér nýja og endurbætta snjallsímalausn. Síðar mun bankinn taka í notkun fleiri vörur Meniga þar sem viðskiptavinir koma til með að geta sett upp sjálfvirkt bókhald, borið sig saman við aðra áþekka einstaklingshópa, sett sér markmið í ákveðnum útgjaldaflokkum og þar með einfaldað og haldið betur um heimilisfjármálin sín. Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga, segir í yfirlýsingu félagsins segir að í þessu felist spennandi tækifæri. „Samskipti fyrirtækja við viðskiptavini fer í auknum mæli fram eftir stafrænum boðleiðum sem opnar á ný og spennandi tækifæri. Bankar eru þar engin undantekning. Með því að innleiða hugbúnað Meniga getur Ibercaja nú átt samskipti við viðskiptavini sína á mun persónulegri hátt. Á sama tíma geta þeir boðið viðskiptavinum sínum upp á betri þjónustu, yfirsýn og innsýn í fjármálin sín og þar með gert viðskiptasambandið mun traustara.“ Meniga var stofnað árið 2009 og eru starfsmenn í dag um 100. Hugbúnaður Meniga hefur verið innleiddur hjá yfir 70 fjármálastofnunum og er hann aðgengilegur 50 milljón manns í 20 löndum. Meðal viðskiptavina Meniga eru margir stærstu banka heims, þeirra á meðal Santander, Commerzbank, ING Direct og Intesa Sanpaolo.
Mest lesið Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Viðskipti innlent Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Viðskipti innlent „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Salzburg úr sögunni hjá Play Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Frá RÚV til Coca-Cola Verulega minni verðbólga Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sjá meira