Vandræðalaust hjá Liverpool gegn botnliðinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. desember 2017 19:15 Roberto Firmino skorar sitt annað mark og fjórða mark Liverpool. vísir/getty Liverpool átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Swansea City að velli í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 5-0, Liverpool í vil. Með sigrinum endurheimti Liverpool 4. sæti deildarinnar. Swansea situr enn á botninum. Philippe Coutinho kom Liverpool á bragðið strax á 6. mínútu. Það reyndist eina markið í fyrri hálfleik. Roberto Firmino kom Liverpool í 2-0 á 52. mínútu eftir sendingu frá Coutinho. Trent Alexander-Arnold skoraði þriðja markið á 65. mínútu og aðeins mínútu síðar bætti Firmino fjórða markinu við. Alex Oxlade-Chamberlain skoraði svo fimmta markið átta mínútum fyrir leikslok. Enski boltinn