Maguire jafnaði á elleftu stundu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. desember 2017 21:30 Harry Maguire skorar jöfnunarmark Leicester. vísir/getty Harry Maguire tryggði Leicester City stig gegn Manchester United í síðasta leiknum fyrir jól í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 2-2. United er í 2. sæti deildarinnar með 43 stig, 13 stigum á eftir toppliði Manchester City. Leicester er í 8. sætinu með 27 stig. Heimamenn komust yfir á 27. mínútu þegar Jamie Vardy skoraði eftir sendingu frá Riyad Mahrez. Juan Mata jafnaði metin þegar fimm mínútur voru til hálfleiks. Á 60. mínútu skoraði Spánverjinn svo annað mark United með skoti beint úr aukaspyrnu. Leicester var einum færri síðustu 17 mínúturnar eftir að Daniel Amartey fékk að líta rauða spjaldið. United fékk úrvalsfæri til að skora þriðja markið en nýttu þau ekki. Þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma jafnaði Maguire metin í 2-2 með skoti af stuttu færi eftir fyrirgjöf Marcs Albrighton. Enski boltinn
Leik lokið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Fótbolti
Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Íslenski boltinn
Leik lokið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Fótbolti
Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Íslenski boltinn