Hluti söluverðsins sem fást mun fyrir bílinn mun renna til uppfræðslu á hryllilegri herför Hitlers og þeirri ógæfu sem hún færði milljónum manna. Þessi tiltekni Mercedes Benz 770K bíll var notaður af Hitler og öðrum SS foringjum og margir gestir þýska foringjans sátu í þessum bíl í viðhafnarheimsóknum. Ennfremur var hann talsvert notaður sem einn bíla í viðhafnarsýningum Nasista á árunum 1939 til 1941.
Bíllinn er með brimvörn á botnplötunni og í hliðunum og framrúðan er einnig skotheld. Einnig var hægt að reisa upp hlífðarplötu fyrir aftan aftursæti bílsins til að verjast árás aftan frá. Vél bílsins er 7,7 lítra og 8 strokka vél sem skilaði heilum 230 hestöflum, sem taldist mikið afl á þessum árum. Bíllinn er beinskiptur með 5 gíra kassa. Bíllinn var gerður upptækur af bandamönnum í lok stríðsins, en ekki kemur fram hver er skráður hinn raunverulegi eigandi hans nú.
