Lífið

Jimmy Fallon og Mike Myers kepptu í undarlegri danskeppni

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þeim tóks vel að leysa verkefnið.
Þeim tóks vel að leysa verkefnið. Vísir
Grínistinn Mike Myers leit við hjá þáttastjórnandanum Jimmy Fallon á dögunum og kepptu félagarnir í vægast sagt undarlegri danskeppni.

Fengu þeir báðir tening þar sem hver hlið var merkt einhverju ákveðnu sem þeir áttu svo að túlka með dansi.

Líkt og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan tókst þeim að leysa afar vel úr þessu vandasama verki.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×