Hagnaður Landsvirkjunar jókst um nærri 3 milljarða Daníel Freyr Birkisson skrifar 22. nóvember 2017 15:24 Höfuðstöðvar Landsvirkjunar í Reykjavík. Vísir/Vilhelm
Landsvirkjun sendi í dag frá sér níu mánaða uppgjör og kemur þar fram að hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði eykst um 29,4 prósent á milli tímabila. Hann nemur þar 12,1 milljarði króna, samanborið við 9,3 milljarða í fyrra. Rekstrartekjur námu 36,5 milljörðum króna og hækka því um 13,1 prósent frá sama tímabili í fyrra. Hagnaður tímabilsins var 3,2 milljarðar á milli tímabila, 8,2 milljarðar nú en tæplega 5 í fyrra. EBITDA nam 26,2 milljörðum króna og er það 71,9 prósent af tekjum, en á sama tíma í fyrra var hlutfallið 73,5 prósent. Handbært fé frá rekstri nam 21 milljarði króna og er það 16,2 prósent hækkun frá sama tímabili fyrir ári. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir áfram vera mikla eftirspurn eftir raforku frá Landsvirkjun. „Fyrstu níu mánuðir ársins voru hagfelldir í rekstri fyrirtækisins. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði hækkaði um 29% frá sama tímabili ársins áður. Tekjur jukust, m.a. vegna þess að álverð hækkaði umtalsvert eftir að hafa verið mjög lágt á síðasta ári. Orkusala jókst um 435 Gwst á fyrstu níu mánuðunum og er áfram mikil eftirspurn eftir raforku frá Landsvirkjun. Sterkt sjóðstreymi stendur að fullu undir umfangsmiklum fjárfestingum á tímabilinu, en þó hefur hægt tímabundið á lækkun skulda á meðan á framkvæmdum við Þeistareyki og Búrfell II stendur. Þeistareykjastöð var gangsett 17. nóvember og senn líður að því að rekstur hennar fari að skila Landsvirkjun tekjum,“ segir Hörður.
Mest lesið Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Viðskipti innlent Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Viðskipti innlent Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Salzburg úr sögunni hjá Play Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Frá RÚV til Coca-Cola Verulega minni verðbólga Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sjá meira