Lífið

Drew Barrymore setti á sig stærstu hárkollu í heimi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Drew Barrymore sló heimsmet.
Drew Barrymore sló heimsmet. Vísir/Skjáskot
Leikkonan Drew Barrymore mætti í heimsókn til spjallþáttastjórnandans Jimmy Fallon og framkvæmdi hreint út sagt ótrúlega hluti.

Þar gerði hún heiðarlega tilraun til að slá nokkur (alvöru) heimsmet, meðal annars í fjölda varalitunar á hálfrí mínútu.

Þá setti hún á sig stærstu hárkollu í heimi og var starfsmaður frá heimsmetabók Guinnes á staðnum, sem staðfesti að um heimsmet væri að ræða.

Það er ljóst að hér er um stórkostlegt afrek að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×