Lífið

Sköpunarkrafturinn fær innspýtingu í sorg

Guðný Hrönn skrifar
MIMRA heldur útgáfutónleika 8. nóvember Í Bæjarbíói.
MIMRA heldur útgáfutónleika 8. nóvember Í Bæjarbíói. vísir/ernir
Tónlistarkonan María Magnúsdóttir var að gefa út plötuna Sinking Island undir listamannsnafninu MIMRA. „Að opna sig persónulega er auðvitað skrítin tilfinning og verður raunverulegri þegar lögin líta loksins dagsins ljós í hljóðriti og maður fer að tala um tilurð þeirra,“ segir María um lög plötunnar sem eru innblásin af lífi og tilveru Maríu seinustu ár. Ást og ástarsorg kemur þar við sögu en María gekk til að mynda í gegnum sambandsslit ekki alls fyrir löngu og flutti á nýjan og ókunnan stað.

„Ég held að sem textahöfundur leiti maður alltaf að einhverju leyti í eigið líf, svo það er ekkert undarlegt að líf manns og hjartasár blæði inn í ljóð og texta. Mér finnst stundum auðveldara að skapa upp úr erfiðum tilfinningum.“

„Sköpunarkrafturinn fær extra innspýtingu í sorg. Mörg lögin á plötunni spretta upp úr sambandsslitum, önnur lög eru upprunnin annars staðar, úr öðrum tilfinningum. Það er bara svo ótrúlega gott að geta samið um það sem veitir manni innblástur hverju sinni.“

María er höfundur allra laga og texta ásamt því sem hún sá um upptökustjórn, hljóðhönnun og hljóðblöndun. Platan var mastersverkefni hennar í tónsmíðum og hljóðhönnun frá Goldsmiths University of London. Um hljómjöfnun sá Bjarni Bragi Kjartansson og Sigríður Hulda Sigurðardóttir hannaði umslagið.

María er himinlifandi með afraksturinn nú þegar platan hefur litið dagsins ljós. „Ég er óendanlega stolt af plötunni og lögunum. Þrátt fyrir að vera mjög breið, tónlistarlega séð, rennur hún vel í gegn og ég hef nostrað við hvert smáatriði. Ég vona að það heyrist skýrt og greinilega og fái fólk til að vilja hlusta aftur og aftur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.