„Samningurinn um Grósku er fyrsti samningurinn sem við undirritum og bygging Grósku fyrsta stóra verkefnið sem við tökum að okkur. Það er ánægjulegt að hugsa til þess að það skuli vera uppbygging hugmyndahúss á Vísindagörðum Háskólans og jafnframt höfuðstöðvar CCP,“ segir Karl Þráinsson, forstjóri Arnarhvols. Húsið verður fullbúið 17.500 fermetrar að stærð en fyrsta skóflustungan að nýbyggingunni var tekin í febrúar á þessu ári.
Karl starfaði áður sem forstjóri Íslenskra aðalverktaka en hætti þar störfum í ársbyrjun 2016 og tók sér þá stöðu stjórnarformanns hjá fyrirtækinu. Hann segir að Arnarhvoll, sem hóf starfsemi um mitt þetta ár, muni í framhaldinu huga að öðrum stórum verkefnum víða um land og ætli sér að vera „leiðandi á verktakamarkaði í framtíðinni“.

Áætlað er að hið nýja hugmyndahús verði tekið í notkun 2019. Húsið skiptist í margar einingar þar sem nýsköpunar- og frumkvöðlafyrirtækjum gefst kostur á að leigja aðstöðu. Þá er einnig gert ráð fyrir verslunum, kaffihúsi og annarri þjónustu á jarðhæð auk ráðstefnusalar.
Leiðrétting: Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar sagði að Andri Sveinsson og Birgir Már Ragnarsson hefðu meðal annars komið að fjármögnun kísilmálmverksmiðjunnar Thorsil. Það er ekki rétt og er beðist velvirðingar á þeim mistökum.
Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.