Lífið

Joey Christ hendir í gott reif í Hörpunni

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Joey Christ ætlar að halda gott reif í Hörpunni.
Joey Christ ætlar að halda gott reif í Hörpunni. Fréttablaðið/Eyþór
Sónar hefur tilkynnt nokkur ný nöfn á hátíðina en það eru Flóni, Blissful og The Joey Christ Show. Flóni gaf nýlega út plötuna Flóni sem rauk í heild sinni beint upp á topp streymislista Spotify, Blissful er hljómsveit sem reis upp úr ösku Steed Lord en það er á huldu hvað The Joey Christ Show nákvæmlega er.

„Við erum bara að tala um að öllu verður til tjaldað. Þarna verður hellingur af leynigestum og eldvörpum – þetta verður bara allsherjar „show,“ segir Jóhann Kristófer Stefánsson, Joey Christ, þegar hann er inntur eftir því hvernig sýningu hann ætli að bjóða upp á í Hörpunni í vor.

Flugeldar og sprengjur?

„Já, jafnvel og kannski krapvél á sviðinu. Ég dæli krapi á glös og skvetti því á áhorfendur, allir geðveikt „sticky“ á því,“ svarar Joey kíminn.

Joey segir að hann verði með helling af gestum á sviðinu, býst við að um verði að ræða stóran hluta af íslensku rappsenunni en hann er þó ekki alveg byrjaður að raða því niður enda er hann upptekinn við að semja og taka upp nýja tónlist sem hann segist ætla að frumflytja á Sónar.

„Þetta verður ný músík og frumsýning á nýju „showi“, nýju Joey-setti. Ég ætla að reyna að blanda reif-elementum inn í þetta því að þetta er þannig hátíð. Það væri mjög gaman.“

Hann segist þó ætla að taka eitthvað af gömlum slögurum, þannig að það eru góðar líkur á því að Cyph­erinn fái að hljóma, mögulega í uppklappi.

Er plata á leiðinni?

„Ég er alveg að vinna í nýju dóti en ekkert komið á blað með plötu. En það verður eitthvað nýtt komið út þarna í kringum Sónar.“

Í vikunni voru fleiri nýir listamenn kynntir til leiks á hátíðina, en það voru:

Lindstrøm

Ben Frost

Reykjavíkurdætur

TOKiMONSTA








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.