Leiðir gullgrafaraævintýri á Grænlandi Daníel Freyr Birkisson skrifar 10. desember 2017 10:00 Eldur Ólafsson. Baldur Kristjánsson
Kanadíska gullleitarfélagið Alopex Gold birti á dögunum skýrslu sem sýnir niðurstöður borunar sem fram fór í Nalunaq-námunni í suðurhluta Grænlands í sumar. Forstjóri fyrirtækisins og einn stofnenda þess er Eldur Ólafsson, 32 ára jarðfræðingur sem búsettur er á Íslandi. Fyrirtækið hefur undir höndum leyfi fyrir þremur gullnámum á Grænlandi – Nalunaq, Vagar og Tartoq. Hann er með lítið skrifstofupláss í Reykjavík, en höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Toronto í Kanada. Mestum tíma ver hann erlendis í þágu fyrirtækisins, þá einkum í markaðsstörfum. Að loknu grunnnámi í jarðfræði við Háskóla Íslands hóf Eldur störf fyrir Geysi Green Energy árið 2008. Síðar meir kom hann að stofnun Orku Energy, en hlutverk hans var að stækka umsvif fyrirtækisins í Kína með því að færa út kvíarnar og fjölga veitum úr einni borg í þrjár þar í landi. Árið 2012 sagði hann skilið við Orku Energy og var hann búsettur í London þegar hann ákvað að skoða Grænland og auðlindir þess sem fjárfestingarmöguleika. „Það sem við gerðum var að fá til liðs við okkur „mining ráðgjafafyrirtæki“ sem heitir SRK Consulting og er mjög stórt á sínu sviði. Fljótlega eftir það ákváðum við að við vildum rannsaka gull og auðlindir sem væru með hátt hlutfall af því efni sem við vinnum á hvert tonn,“ segir Eldur.Hófu starfsemi í Nalunaq-námuAlopex fékk leyfi fyrir rannsóknum og framkvæmdum í Nalunaq-námu sem er í dag ein af lykileignum félagsins. Um er að ræða námu sem áður var í höndum annarra eigenda en fór í greiðslustöðvun árið 2013. Í þeirri eign var stór sjóður frá lánveitanda sem einnig hafði verið eigandi eigið fjárs. „Við sömdum við þá að taka á okkur ákveðnar rannsóknir gegn því að fá hlutafé með því að sýna fram á að það væri ennþá töluvert mikið af mögulegum auðlindum um og í kringum þessa námu.“ Náman er neðanjarðar og fór starfsemi sumarsins í að bora holur og komast að því hvort möguleiki væri á 1,2 milljóna únsa framhaldi á aðalgullæð sem þegar hafði verið fundin. Árin 2015 og 2016 fóru fram boranir til þess að finna aðalgullæðina, en hún er meter að þykkt og hallar um það bil 35 gráður upp í fjallið. Vinnan fór upphaflega fram ofarlega í fjallinu, í um það bil 700-1300 metra hæð en í sumar fór mest vinna fram í borun dalsbotnsins og kom það í ljós að æðin heldur í raun áfram undir dalinn. Niðurstöðurnar auka fyrir vissu möguleikann að 1,2 milljónir únsa af gulli séu til staðar en eins og staðan er í dag inniheldur náman 263 þúsund únsur af gulli. Um aldamótin fór í gegn löggjöf á Grænlandi um námurannsóknir sem gerði það að verkum að auðvelt var að sækja um leyfi og skýrt var hvar hvernig skyldi vinna í þeim geira. Umhverfislöggjöfin í tengslum við þessi lög er að sama skapi góð en einnig er tekið tillit til fólksins sem býr á námusvæðunum. Eftir þetta fór töluvert fjármagn í námugeirann og hafa rannsóknir aukist á síðustu tíu árum eða svo.Eldur á vettvangi á Nalunaq-námusvæðinu.Baldur KristjánssonNæstu skref eru Vagar og TartoqStór hluti framkvæmdanna á vegum Alopex sem fram fór í sumar var í Nalunaq en fyrirtækið er einnig með leyfi á námurannsóknarsvæðunum Vagar og Tartoq. „Við erum að sinna skrifborðsvinnu, ef svo má að orði komast, fyrir Vagar núna og erum í raun með tuttugu „target“ um það hvar við ætlum að bora og svo framvegis. Það sem er sameiginlegt með þessum þremur námum er að þær innihalda allar gullæðar sem koma upp á yfirborð og í þeim er oft á tíðum hátt hlutfall af gulli á hvert tonn sem við erum að rannsaka og er það öðruvísi en víðast hvar í heiminum.“ Fáar rannsóknir og lítil nýting gullauðlindarinnar felur í sér stór tækifæri segir Eldur. „Þarna hefur ekki verið rannsakað mikið. Við náum að kaupa þessi þrjú leyfi og skrá þau saman á markað. Við erum nú eina skráða gullfélagið á þessum markaði [á Grænlandi],“ en hann tekur einnig fram að til séu önnur félög sem sinna svipuðum rannsóknum á sviði annarra málmtegunda. Það störfuðu 4-5 íslenskir starfsmenn í framkvæmdunum hjá Alopex í Nalunaq í sumar og segir Eldur það koma sér vel því þeir starfi vel. Hann segir tímafrekt að þjálfa starfsfólk í greininni. Námuvinnsla sé mjög sérhæft verkefni. Hann segir hag fyrirtækisins liggja í því að ráða heimamenn, það er Grænlendinga, til þess að starfa í námunum. Það sé einkum vegna kostnaðar en einnig hjálpi það til við uppbyggingu greinarinnar þar í landi. Hann segir að rannsóknir og framkvæmdir Alopex hafi fengið góðar viðtökur. „Við höfum fengið jákvæðar viðtökur. Greiningarskýrslur koma vel út og það er töluverður áhugi,“ segir Eldur en bendir jafnframt á að fyrirtækið flýti sér hægt. „Við vinnum þetta bara eitt skref í einu. Það hefur gengið ágætlega og við vonum að þetta haldist þannig áfram.“ Hér að neðan má sjá myndband sem unnið er í Google Earth og sýnir á hvaða svæðum er unnið í Nalunaq.
Mest lesið Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Viðskipti innlent Sjálfstætt starfandi fjölgar: Fljótlegt, einfalt og oft ódýrara Atvinnulíf Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Viðskipti innlent Flugumferð aldrei verið meiri en á síðasta ári Viðskipti innlent Kaupa meirihluta hlutafjár Internets á Íslandi hf. Viðskipti innlent Ný gervigreindarlausn opnar fyrir sólarhringsþjónustu 1819 Viðskipti innlent Hættir sem ritstjóri Bændablaðsins Viðskipti innlent Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Viðskipti innlent Sjálfstætt starfandi fjölgar: „Hvað gerist þegar forstjórinn veikist?“ Atvinnulíf Þurfa að greiða starfsfólki Flame enn fleiri milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Flugumferð aldrei verið meiri en á síðasta ári Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Ný gervigreindarlausn opnar fyrir sólarhringsþjónustu 1819 Nýr framkvæmdastjóri Kuehne+Nagel á Íslandi Kaupa meirihluta hlutafjár Internets á Íslandi hf. Litlar breytingar á þorski í stofnmælingu Hafró Þurfa að greiða starfsfólki Flame enn fleiri milljónir Ráðinn sviðsstjóri viðskiptasviðs hjá Faxaflóahöfnum Íbúðum í byggingu fór fækkandi á milli ára Hættir sem ritstjóri Bændablaðsins Stefán Örn nýr eigandi hjá Rétti JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni Hótel Selfoss verður Marriott hótel Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Engin hópuppsögn í desember Aldrei jafn margir ferðast með Icelandair Slitu kolefnisbindingarfyrirtækinu Running Tide Eigendum fjölgar hjá LOGOS Þrír og hálfur milljarður króna fyrir Perluna Blöskrar 14 prósent verðhækkun tryggingarfélags Ummæli stjórnarmanns Eflingar um sníkjudýr „til skammar“ Vigdís frá Play til Nettó Gjafabréf og alls konar flatbökudótarí vinsælar jólagjafir í ár Innkalla nagstangir sem hundar veikjast af Nýskráning fólksbíla dróst saman um rúm fjörutíu prósent Kaupsamningar nærri helmingi fleiri en í fyrra Verkalýðshreyfingin sé stærsta ógnin við starfsöryggi á veitingastöðum Slippurinn allur að sumri loknu „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Sjá meira