Lífið

Logi tók af sér bleika bindið eftir að Twitter kallaði eftir gullbindinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Logi Geirsson í stúdíóinu í kvöld, með og án bindis.
Logi Geirsson í stúdíóinu í kvöld, með og án bindis.
Þeir Logi Geirsson og Kristján Arason voru sérfræðingar í HM-stofu RÚV í kvöld þegar fyrsti landsleikur íslenska karlalandsliðsins í handbolta fór fram í Frakklandi. Strákarnir máttu játa sig sigraða og eins og alltaf var umræðan líflega á samfélagsmiðlinum Twitter.

Það var þó ekki bara handboltinn sem fólk tjáði sig um heldur einnig klæðnaður Loga en einhverjir muna eflaust eftir gullbindinu sem hann skartaði í EM-stofunni í fyrra.

Margir kölluðu  eftir því bindi á Twitter í kvöld en Logi var með bleikt bindi. Eftir leik var hann reyndar búinn að taka bindið af sér og var bindislaus. Hvort að gullbindið sjáist svo aftur á skjánum á næstu dögum kemur í ljós.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.