Þó að margir bíði kannski óþreyjufullir eftir hækkandi sól og brakandi ferskum trendum er engu að síður hægt að gera góð kaup á útsölum. Mikilvægt er þó að vanda valið svo fíkurnar standist tímans tönn.
Hér koma nokkur góð ráð fyrir útsölukaupin frá Glamour.
1. Taktu til í fataskápnum áður en þú skellir þér á útsölurnar til þess að fá betri yfrsýn yfir hvað þú átt og þar af leiðandi hvað þig vantar.
2. Fjárfestu frekar í einföldum og klassískum fíkum á útsölu sem þú veist að þú kemur til með að nota mikið.
3. Leitaðu að dýrari og vandaðri hlutum á útsölu, það er betri fjárfesting þegar til lengri tíma er litið.
4. Forðastu skyndikaup á útsölum – hugsaðu málið og nýttu útsölurnar í að kaupa vörur sem þú hefur haft augastað á en kannski ekki tímt að kaupa.
Dömubuxur og pils
Photo Gallery by QuickGallery.com
Það er mjög sniðugt að nota útsölurnar til að finna góðar og klassískar buxur, hér má sjá fallegt úrval af buxum og pilsum sem við tókum saman.
Fylgihlutir
Photo Gallery by QuickGallery.com
Fallegir fylgihlutir detta aldrei úr tísku, finndu þinn draumafylgihlut nú á niðursettu verði í myndaalbúminu fyrir ofan.
Herraklæði
Photo Gallery by QuickGallery.com
Við tókum saman glæsilegt úrval af buxum, jökkum, skóm, bolum og bindum; allt fyrir herrann.
Yfirhafnir
Photo Gallery by QuickGallery.com
Nú er rétti tíminn til þess að næla sér í fallega jakka og hlýjar yfirhafnir, enda margir kaldir mánuðir eftir áður en fer að vora.
Allt fyrir börnin
Photo Gallery by QuickGallery.com
Dásamlegar flíkur fyrir börnin á góðu verði. Tilvalið er að nýta vetrarútsölurnar til að birgja sig upp fyrir smáfólkið í fjölskyldunni.
Bolir og skyrtur
Photo Gallery by QuickGallery.com
Vantar okkur ekki alltaf boli? Fallegt úrval af bolum, toppum, blússum og skyrtum á útsölunum í ár.
Kjólar
Photo Gallery by QuickGallery.com
Kjólar fyrir öll fínni tilefni. Sparaðu þér stressið og nældu þér í árshátíðarkjólinn á útsölunum. Það er alltaf tækifæri til að klæða sig upp.