Lífið

Kathy Griffin varð að biðja Trump afsökunar eftir myndbirtingu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kathy Griffin hefur beðist afsökunar á myndbirtingunni.
Kathy Griffin hefur beðist afsökunar á myndbirtingunni. Vísir/Getty
Grínistinn Kathy Griffin hefur nú beðist opinberlega afsökunar á mynd sem hún birti á dögunum.

Þar hélt hún á Donald Trump grímu sem var öll útötuð í gerviblóði og leit út eins og hún væri með afskorið höfuð Bandaríkjaforseta í höndunum.

Griffin hefur núna fjarlægt myndina af veraldarvefnum en eins og allir vita gleymir internetið aldrei neinu.

Hún birtir myndband af afsökunarbeiðni sinni og virðist hún sjá töluvert eftir uppátækinu.

Donald Trump hefur sjálfur tjáð sig um málið á Twitter og segir hann: „Kathy Griffin ætti að skammast sín. Það er erfitt fyrir ellefu ára son minn að takast á við svona.“

Hér að neðan má sjá afsökunarbeiðni Griffin.

Hér að neðan má síðan sjá myndina sem allir eru að tala um.

Kathy Griffin.Skjáskot af YouTube





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.