Lífið

Lindsay Lohan og annað frægðarfólk væntanlegt til Íslands

Jakob Bjarnar skrifar
Meðal fjölmargra heimsþekktra vina Lucketts er Lindsay Lohan og er gert ráð fyrir því að hún snúi plötum í veislunni.
Meðal fjölmargra heimsþekktra vina Lucketts er Lindsay Lohan og er gert ráð fyrir því að hún snúi plötum í veislunni.
Óvenju mikið verður um dýrðir á þjóðhátíðardag Íslendinga en þá hyggjast þeir Oliver Lukkett og Scott Guinn gifta sig. Til stendur að efna til dýrðarinnar veislu vegna giftingarinnar.

Ekki að Íslendingar kippi sér orðið upp við það þó frægðarfólk troði hér grundir en samkvæmt heimildum Vísis er von á strollu slíkra til landsins vegna brúðkaupsins. Þannig er til að mynda fastlega búist við því að Lindsay Lohan, sem er meðal fjölmargra þekktra vina Lucketts, mæti og er gert ráð fyrir því að hún verði plötusnúður í veislunni. Eða DJ-i eins og það kallast.

Oliver Luckett hefur þegar sett mark sitt á mannlífið í Reykjavík og hefur haldið veislur á Íslandi sem vakið hafa mikla athygli. Til dæmis mætti skemmti- og listaelítan nánast eins og hún lagði sig þegar Luckett hélt upp á fertugsafmæli sitt fyrir þremur árum.

Luckett er vel fjáður en hann seldi fyrir ekki svo löngu fyrirtæki sitt theAudience fyrir stórfé til fjárfesta frá Dubai. Luckett er frumkvöðull og samfélagsmiðlasérfræðingur og hefur meðal annars annast málefni frægs fólks á internetinu.

Hann og Guinn hafa verið tíðir gestir á Íslandi undanfarin árin og líta á Ísland sem sitt annað heimili. Fyrir um ári keyptu þeir Kjarvalshúsið á Seltjarnarnesi. Þeir eru miklir listunnendur og hafa komið á fót listsafni í húsinu. Þeir hafa verið duglegir að kaupa íslensk listaverk og eru þannig í hávegum hafðir meðal íslenskra listamanna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.