Lífið

Fimmtugsafmæli Gróttu fagnað út alla vikuna

Sæunn Gísladóttir skrifar
Kristín Finnbogadóttir hefur verið framkvæmdastjóri Gróttu í fjórtán ár.
Kristín Finnbogadóttir hefur verið framkvæmdastjóri Gróttu í fjórtán ár. Vísir/Ernir
Ég vona að allir Seltirningar og vandamenn Gróttu komi að heimsækja okkur,“ segir Kristín Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri Gróttu. Íþróttafélagið er fimmtíu ára gamalt í dag og fer skipulögð dagskrá fram í dag, en einnig á fimmtudag, föstudag og laugardag.

Páll Óskar mætir í dag og treður upp í Hertz-höllinni og einnig verða ávörp og ræður, vegleg myndasýning og veitingar í boði.

„Það verður flott dagskrá í dag. Hápunktur hátíðarhaldanna er í dag því það er afmælisdagurinn og því aðaldagurinn. Við vonum að Seltirningar komi allir og fagni með okkur. Fái sér köku og börnin fái andlitsmálningu og allt þetta venjulega. Forsetinn ætlar að koma að heimsækja okkur, hann bjó nú hérna hjá okkur,“ segir Kristín. „Þetta er opið hús og við vonum svo sannarlega að það komi fullt af fólki.“

Grótta er með þrjár íþróttadeildir, fótbolta, handbolta og fimleika. Iðkendur er yfir þúsund og á öllum aldri, frá þriggja ára og upp úr.

Kristín er búin að vera framkvæmdastjóri Gróttu í fjórtán ár og hefur séð félagið taka miklum breytingum á þeim tíma. „Ég hef séð handboltann verða fyrsta boltaliðið okkar sem vinnur stórtitla, í hitteðfyrra urðum við deildar-, bikar- og Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna og í fyrra urðum við Íslandsmeistarar. Það er stórkostlegur árangur og hefur aldrei gerst í sögu félagsins áður. Það var alveg frábært. Fótboltinn er svo að fara í fyrsta sinn upp í fyrstu deild og það er alveg stórkostlegt, þeir voru í fjórðu deild þegar ég byrjaði hérna.“ Kristín segir því ljóst að það sé heilmikið að gerast hjá íþróttafélaginu.

Litið fram á veginn segist Kristín ekki eiga von á því að bætt verði við íþróttagreinum hjá félaginu eins og staðan er í dag, framkvæmdir séu þó fram undan. „Nú er verið að stækka íþróttamiðstöðina, það verður byrjað á því í haust. Það verður töluvert mikil aukning á plássi og betri aðstaða. Það verður aðallega fimleikasalurinn sem verður stækkaður en í framhaldinu losnar um í hinum sölunum sem er mjög hagkvæmt fyrir hinar deildirnar.“

Hátíðardagskráin heldur sem fyrr segir áfram út vikuna og lýkur með Pallaballi á laugardagskvöldinu. „Það koma bara vonandi sem flestir á Pallaballið,“ segir Kristín að lokum.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.